Vinnutengd útsetning fyrir frá líffræðilegum efnum getur tengst ýmsum heilsufarsvandamálum, þar með talið smitsjúkdómum, krabbameini og ofnæmi. Sum líffræðileg efni geta einnig skaðað ófædd börn.
Starfsfólk í vissum atvinnugreinum, svo sem í heilbrigðisþjónustu og dýralækningum, landbúnaði, fráveitustjórnun og rannsóknarstofum, eru í sérstakri hættu. Þetta starfsfólk kann að vinna með örverur með beinum hætti eða verið útsett fyrir þeim í gegnum snertingu, t.d., við líkamsvessa eða jarðveg. Ef uppspretta útsetningar fyrir líffræðileg efni er þekkt, þá er tiltölulega auðvelt að koma í veg fyrir neikvæð áhrif á heilsu. Áhættustjórnum á óþekktum uppsprettum útsetningar er mun erfiðari viðfangs.
EU-OSHA leggur fram lesefni um þetta efni:
Líffræðilegir áhrifavaldar og vinnutengdir sjúkdómar: niðurstöður úr útgefnu efni, könnun á meðal sérfræðinga og greining á eftirlitskerfum: Skýrsla og yfirlit
Umræðublöð um atvinnugreinar þar sem áhætta á útsetningu fyrir líffræðilegum efnum er mikil: heilbrigðisþjónusta, störf sem fela í sér ferðalög og snertingu við ferðamenn, störf í tengslum við dýr; úrgangsstjórnun og hreinsun á frárennslisvatni; og akuryrkja.