Image
Framtíðarsýn EU-OSHA útskýrir hverju stofnunin stefnir að og vísar til markmiðsins með framlagi hennar.
Við verndum öryggi og heilsu starfsmanna með því að hafa upplýsta stefnu, styðja við áhættuvarnir, auka vitund og virkja lykilaðila.
Við innleiðum framtíðarsýn okkar með því að:
- Að leggja fram sannanir og þekkingu um núverandi, nýjar og tilvonandi áhættur varðandi áhrif þeirra á öryggi og heilsu og forvarnir, til að styðja við stefnumótun og rannsóknir.
- Að stuðla að og auðvelda þróun tækja og úrræða til að styrkja tengslanet stofnunarinnar og samstarfsaðila til að bæta forvarnir gegn vinnuverndaráhættu á vinnustað.
- Að skapa vitundarvakningu og tengslamyndunaraðgerðir til að gera stofnuninni og hagsmunaaðilum hennar kleift að efla jákvæða áhættuvarnamenningu í starfi.
Helsta starfsemi okkar
- Herferðirnar Vinnuvernd er allra hagur — tveggja ára herferðirnar okkar til þess að auka vitund um vinnuverndarmál í Evrópu
- Verkefnið um gagnvirka áhættumatstólið á Netinu (OiRA) — við bjóðum upp á áhættumatstól á Netinu fyrir smá- og meðalstór fyrirtæki til þess að leggja mat á og stjórna áhættum á vinnustöðum.
- ESENER könnunin — þessi víðtæka könnun veitir yfirsýn yfir stjórnun öryggis- og heilbrigðisáhættna á evrópskum vinnustöðum
- OSHwiki — alfræðiorðabók á Netinu með réttum og áreiðanlegum upplýsingum um vinnuverndarmál
- Framsýnisverkefni — við undirstrikum og rannsökum nýjar og aðsteðjandi vinnuverndaráhættur í gegnum sérstök framsýnisverkefni
- Vinnuverndaryfirlit — við veitum yfirlit yfir sérstök vinnuverndarefni og bendum á forgangsmál
- NAPÓ kvikmyndir — röð stuttra, skemmtilegra, tallausra kvikmynda um mikilvæg atriði á sviði vinnuverndar