Myndgerðartól Vinnuverndarbarómetrans

Tólið er opinber uppspretta upplýsinga um stöðu og þróun vinnuverndarmála í Evrópulöndum.

Vísar

Kynntu þér og berðu saman margvíslegar upplýsingar um einstök lönd og Evrópusambandið.

Almennar upplýsingar: Fáðu upplýsingar um vinnuverndaryfirvöld, hag- og atvinnugreinaupplýsingar og vinnuafl.

Stjórnun vinnuverndarmála: Skoðaðu reglugerðir ESB og innlendar reglugerðir til að öðlast þekkingu á því hvernig löndin standa að vinnuverndaráætlunum sínum og samræðum við aðila vinnumarkaðarins þegar kemur að öryggi og heilbrigði á vinnustöðum.

Vinnuaðstæður og forvarnir: Fáðu frekari upplýsingar um áhættur á vinnustöðum, forvarnir í fyrirtækjum, þátttöku starfsmanna og vinnuverndarmenningu og heilsufarsvitund.

Slys, sjúkdómar og velferð: Lærðu um dauðsföll og vinnuslys, vinnutengda sjúkdóma eða meiðsli og skilning launþega á heilbrigði.

Vinnuverndarinnviðir: Fáðu frekari upplýsingar um vinnuverndartölfræði einstakra landa, kannanir og rannsóknargetu og hvernig vinnuverndarlögum er framfylgt í einstökum löndum. Í kaflanum er einnig að finna upplýsingar um alþjóðastofnanir og áætlanir.

Notkun á myndgerðartólinu

Notaðu tólið til að myndgera og bera saman magnbundin gögn. Finndu lýsingar og tengla á frekari upplýsingar með magnbundnum gögnum.

Tólið gerir þér kleift að:

  • skoða helstu vísa og upplýsingagröf
  • bera saman landsupplýsingar við 1 eða 2 önnur lönd, ESB eða fyrri ár
  • búa til og hlaða niður myndefni eða flytja það út sem Excel skrár
  • hlaða niður ítarlegum landaskýrslum eða skýrslum um tiltekin efni, t.d. innlendar stefnur
  • deila efni með beinum hætti á samfélagsmiðlum

Gagnaheimildir

Þessi gögn eru frá stjórnvöldum, hagskýrslustofnunum og könnunum og rannsóknum í Evrópu:

Um Vinnuverndarbarómetrann

Barómetrinn er samstarfsafurð EU-OSHA, DG EMPL og innlendra landsskrifstofa. Frekari upplýsingar um aðferðafræðina.

Tólið er uppfært reglulega og verið er að skoða frekari þróun þess.

Skoða tólið