Sköpun samtengds stafræns innri markaður er eitt af topp 10 forgangsmálum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Framsýnisverkefni EU-OSHA skoðar áhrif hraðrar þróunar stafrænnar tækni á vinnu, þ.m.t. gervigreindar og þjarkafræði, og möguleg áhrif á vinnuvernd (OSH). Þetta verkefni miðar við að gefa ákvörðunartökum innan ESB, ríkisstjórnum aðildarríkja, stéttarfélögum og vinnuveitendum þær upplýsingar sem þau þurfa um breytingar á stafrænni tækni, áhrif þeirra á eðli og skipulagningu vinnu, og aðsteðjandi vinnuverndaráskoranir sem þær gætu fært með sér.
Útgáfur í tengslum við verkefnið
-
Lykilþættir og hvatar að breytingum í upplýsinga- og samskiptatækni sem og staðsetningu vinnustaðar - skýrsla
-
Framtíðarspár og fyrirhyggja varðandi nýjar og aðsteðjandi hættur þegar kemur að vinnuvernd í tengslum við aukna stafræna þróun fyrir 2025 - skýrsla og yfirlit
- Bæklingur
Eftirfylgnirannsóknir sem skoða mikilvæg svæði og áskoranir frekar
-
Verndum launþega í nethagkerfinu: Yfirlit yfir stefnumótun og þróun regluverks í ESB - Skýrsla og yfirlit
Kannanir á alla útgefna sérfræðiumræðu um ICT/stafræna þróun og vinnuvernd
Þessar aðgerðir ættu að stuðla að öruggum og heilbrigðum vinnustöðum í framtíðinni, í samræmi við snjallan og sjálfbæran vöxt fyrir alla innan ESB.