Nánari upplýsingar um heimildir og skilgreiningar á hugtökum í orðasafni um sálfélagslega áhættu er að finna í þessari skrá

A

Aflsaukning geðheilsu

Miðar að því að efla jákvæða geðheilsu með því að auka sálfræðilega vellíðan, hæfni og seiglu, auk þess að skapa stuðningsríkar lífsaðstæður og umhverfi. Aflsaukning geðheilsu á vinnustað felur í sér verkefni sem atvinnurekandi stendur fyrir til að bæta geðheilsu starfsfólks.

Að koma tilbaka til vinnu

Áætlanir sem eru hannaðar til að auka getu starfsfólks til að snúa aftur til vinnu og halda áfram í starfi eftir veikindaleyfi. Þær fela í sér samsetningu af læknisfræðilegri meðferð, endurhæfingu og stuðningi.

Á

Áreitni (eða einelti

Áreitni er yfirleitt framin af einstaklingum innan vinnustaðarins og er stigvaxandi ferli sem felur í sér endurteknar tilraunir til að ógna, hræða, gera lítið úr eða niðurlægja einn eða fleiri samstarfsmenn. Gerandi á vinnustað getur verið yfirmaður, samstarfsmaður, undirmaður, skjólstæðingur eða viðskiptavinur — í raun hver sá sem starfsmaður kemst í samskipti við vegna starfa sinna.

Áreitni á vinnustað

Áreitni á vinnustað er oft framin af einstaklingum innan vinnustaðarins og er stigvaxandi ferli sem felur í sér endurteknar tilraunir hóps starfsmanna til að ógna, vanvirða, niðurlægja eða sárna einum eða fleiri samstarfsmönnum. Áreitni getur komið frá yfirmönnum, samstarfsmönnum, undirmönnum, viðskiptavinum eða öðrum sem starfsmaður hefur samskipti við vegna vinnu sinnar.

E

Einelti (áreitni)

Yfirleitt framið af einstaklingum innan vinnustaðarins. Áreitni er stigvaxandi ferli sem felur í sér endurteknar tilraunir til að ógna, hræða, niðurlægja eða smána einn eða fleiri samstarfsmenn. Gerandi á vinnustað getur verið yfirmaður, samstarfsmaður, undirmaður, skjólstæðingur eða viðskiptavinur — í raun hver sá sem starfsmaður kemst í snertingu við vegna starfa sinna.

Einstaklingsbundnar aðgerðir

Í tengslum við forvarnir gegn sálfélagslegri áhættu vísa einstaklingsbundnar aðgerðir til úrræða sem beinast að því að styðja og efla einstaklinginn, fremur en að breyta skipulagslegum eða tæknilegum þáttum starfseminnar. Slíkar aðgerðir geta til dæmis falist í þjálfun í því hvernig takast megi á við erfiða viðskiptavini, núvitundarnámskeiðum, handleiðslu, markþjálfun eða aðgengi að trúnaðarráðgjöf.

F

Fjölbreytni á vinnustað

Fjölbreytni vísar til þess að fjölbreytileiki sé til staðar innan tiltekins umhverfis. Á vinnustað getur það falið í sér margvísleg persónueinkenni, svo sem uppruna, þjóðerni, kyn, aldur, kynhneigð, trúarbrögð, fötlun, félags- og efnahagslegan bakgrunn og menntunarstig. Fjölbreyttur starfsmannahópur tengist náið inngildingu. Á meðan „fjölbreytni“ snýst um hverjir eru til staðar, snýst „inngilding“ um hvernig er staðið að þátttöku og samskiptum — sjá einnig > Inngildandi vinnustaðir.

Fordómar gegn geðheilsu

Fordómar gegn geðheilsu eiga sér stað þegar fólk er dæmt, útilokað eða komið illa fram við vegna þess að það glímir við geðheilbrigðisvandamál. Þessir fordómar byggjast oft á misskilningi, ótta eða staðalímyndum og geta leitt til skammartilfinninga og mismununar.

Frammistaða í starfi

Gefur til kynna hversu vel einstaklingur sinnir daglegum verkefnum sínum á þann hátt að það styðji við markmið fyrirtækisins eða stofnunarinnar.

G

Geðheilsa

Ástand vellíðunar þar sem einstaklingurinn nýtir eigin hæfileika, ræður við eðlilegar streitur í lífinu, vinnur af afkastagetu og árangri, og getur lagt sitt af mörkum til samfélags síns.

Geðraskanir

einkennast af klínískt marktækri truflun á hugsun, tilfinningastjórn eða hegðun einstaklings. Þær tengjast oft vanlíðan eða skerðingu á mikilvægum sviðum lífsstarfsemi.

H

Heilsueflandi vinnustaður

Áhersla á heilsu á vinnustað felur í sér sameiginlegar aðgerðir atvinnurekenda, starfsfólks og samfélagsins til að bæta heilsu og vellíðan fólks í vinnu.
Þetta má ná fram með samsetningu af:

  • bætt skipulag vinnu og vinnuumhverfi,
  • stuðla að virkri þátttöku, og
  • hvetja til persónulegrar þróunar.

I

Inngildandi vinnustaðir

Inngildandi vinnustaður er vinnustaður þar sem tryggt er að hver og einn starfsmaður finni til virðingar og fái viðurkenningu fyrir einstakt framlag sitt, jafnframt því sem mismunur og fjölbreytni starfsfólks er virt. Inngildandi vinnustaðir byggja á markvissum og fyrirbyggjandi aðgerðum til að uppræta fordóma, mismunun og ójöfn tækifæri, og laga starfsaðstæður að getu og þörfum hvers og eins.

K

Kulnun (starfsþreyta)

Heilkenni sem stafar af langvarandi streitu tengdri starfi. Einkenni þess einkennast af þremur meginþáttum: tilfinningu um orkuleysi eða örmögnun; aukinni andlegri fjarlægð frá starfinu eða neikvæðum og tortryggnum viðhorfum gagnvart því; og minnkaðri starfslegri virkni eða árangri.

Kynferðisleg áreitni á vinnustað

Allar tegundir óæskilegrar munnlegrar, óyrtrar eða líkamlegrar hegðunar af kynferðislegum toga, sem eiga sér stað með þeim tilgangi eða áhrifum að brjóta á reisn einstaklings, sérstaklega þegar það skapar ógnandi, óvinveitt, niðurlægjandi, sárnæmt eða móðgandi vinnuumhverfi.

M

Mat á sálfélagslegri áhættu

Kerfisbundin greining á sálfélagslegum áhættuþáttum á vinnustað og mat á því hvaða áhrif þeir áhættuþættir geti haft á líðan starfsfólks. Niðurstöður leiða til ákvarðana um hvort áhættan geti verið fjarlægð og, ef ekki, hvaða forvarnaráðstafanir eigi að vera til staðar til að stýra áhættunni.

Mættir þrátt fyrir veikindi

Vísar til þess þegar einstaklingur mætir til vinnu þrátt fyrir að vera veikur eða meiddur, á meðan ástand hans kemur í veg fyrir að hann geti unnið á fullum afköstum og/eða örugglega.

O

Ofbeldi frá þriðja aðila

Ofbeldi frá þriðja aðila felur í sér líkamlega eða sálfélagslega/munnlega árásargirni sem framkvæmd er af einstaklingum utan fyrirtækisins, ekki af samstarfsfólki.

S

Sálfélagsleg áhætta

Áhætta sálfélagslegra þátta geta valdið sálfræðilegri, félagslegri eða líkamlegri vanlíðan starfsfólks. Þegar fjallað er um sálfélagslega áhættu er því lögð áhersla á hvernig þessir áhættuþættir geti valdið raunverulegri vanlíðan starfsfólks hafi þar af leiðandi árhif á árangur vinnustaðarins.

Sálfélagslega öruggt og heilbrigt vinnuumhverfi

Vinnustaður sem stuðlar að sálfélagslegri vellíðan starfsmanna og vinnur markvisst að því að koma í veg fyrir skaða á sálfræðilegri og líkamlegri heilsu starfsmanna, þar á meðal skaða sem stafar af hirðuleysi, gáleysi eða ásetningi.

Sálfélagslegir áhættuhættir

Neikvæðir þættir sálfélagslegra þátta sem geta haft neikvæð áhrif á vellíðan starfsfólks og önnur viðkomandi skipulagsleg atriði, til dæmis lítið sjálfstæði í starfi eða skortur á félagslegum stuðningi.

Sálfélagslegir þættir

Þættir sem tengjast hönnun og stjórnun starfa ásamt félagslegu og skipulagslegu samhengi starfsins, til dæmis tilfinningalegar kröfur, vinnuálag og félagslegur stuðningur.

Sjálfsfordómar

Sjálfsfordómar vísa til aðstæðna þar sem einstaklingur sem hefur verið stimplaður innleiðir neikvæð viðhorf og ályktanir og gerir þau að hluta af sinni eigin sjálfsmynd.

Sjálfstæði í starfi

Vísar til þess hversu mikla stjórn starfsfólk hefur á því hvernig þeir vinna starfið sitt. Þetta getur tengst til dæmis vinnuaðferðum, verklagi og skipulagi.

Skipulagsaðgerðir

Í samhengi við vinnuvernd vísa skipulagsaðgerðir til breytinga á skipulagsþáttum, vinnuferlum og hönnun starfa með það að markmiði að lágmarka mögulega vanlíðan hjá starfsfólki. Þegar um sálfélagslega áhættu er að ræða geta mögulegar skipulagsaðgerðir verið m.a.: skýring á ábyrgð og verkefnum, skýrar leiðbeiningar, sveigjanlegt vinnuskipulag, bæting á staðgenglafyrirkomulagi, mótun vinnustaðamenningar o.s.frv.

Stjórnun sálfélagslegrar áhættu

Ferli sem felur í sér virka meðhöndlun sálfélagslegra áhættuþátta á vinnustað, allt frá undirbúningi og framkvæmd mats á sálfélagslegri áhættu, yfir í skipulagningu og framkvæmd viðeigandi aðgerða, auk endurskoðunar aðgerða til að tryggja samfellda aðlögun og bætingu inngripa.

T

Taugafjölbreytni (Neurodiversity)

Taugafjölbreytni vísar til þess að allir einstaklingar hafa fjölbreytt vitsmunaleg einkenni, taugalíffræðilega hæfni, styrkleika og áskoranir, sem beri að viðurkenna og sýna virðingu fyrir.

V

Vinnustaðamenning

Safn sameiginlegra gilda, trúar, merkingar og væntinga sem móta hvernig fólk vinnur og tekur þátt í samskiptum innan vinnustaðarins. Hún hefur áhrif á samskipti, ákvarðanatöku og heildarumhverfi vinnustaðarins.

Vinnutengd sjálfsvíg

Sjálfsvíg sem er annaðhvort orðið vegna vinnu eða þar sem vinna hefur átt þátt í að það átti sér stað.

Vinnutengd streita

Vinnutengda streitu má skilgreina sem mynstur tilfinningalegra, vitsmunalegra, hegðunarlegra og lífeðlislegra viðbragða við neikvæðum og skaðlegum þáttum í vinnuskipulagi og vinnuumhverfi. Hún er ástand sem einkennist af háu örvunar- og vanlíðunarstigi og oft tilfinningu um að ráða ekki við aðstæður.

Þ

Þunglyndi

Algeng geðröskun sem felur í sér viðvarandi depurð eða minnkaða ánægju og áhuga á athöfnum yfir lengri tíma. Þunglyndi er frábrugðið eðlilegum skapsveiflum og tilfinningum sem tengjast daglegu lífi. Þunglyndi er einnig nefnt þunglyndisröskun.