Eftir undirritun stöðugleika- og samstarfssamningsins í júní 2006 varð Albanía hluti af stöðugleika- og samstarfsferlinum. Innan þess ramma hefur miklum árangri verið náð með hliðsjón af vinnuverndarmálum. Ríkisstjórnin gerði drög að „vinnuverndarstefnu ríkisins“ og var hún samþykkt af þinginu.

Gerð hafa verið drög að „vinnuverndarlöggjöf“ og er búist við því að hún verði samþykkt af þinginu. Samræming hefur farið fram milli stofnana, sem vinna að vinnuverndarmálum, og samræður á milli aðila vinnumarkaðarins hafa verið styrktar.

Í Tékklandi fellur vinnuvernd og vellíðan á vinnustöðum aðallega undir atvinnu- og félagsmálaráðuneytið, sem einnig heldur utan um samstarf við aðila vinnumarkaðarins og heilbrigðisráðuneyti Tékklands. Í takmörkuðum mæli heyrir efnið undir tékknesku Námustofnunina og Kjarnorkuöryggismálastofnun ríkisins.

Danska vinnuumhverfisstofnunin samræmir samstarf við Vinnuverndarstofnun Evrópu og starfar á vegum danska atvinnumálaráðuneytisins. Hún ber ábyrgð á að tryggja framfylgni við löggjöf á sviði vinnuverndarmála en hún gildir um öll störf í Danmörku. Hins vegar eru ákveðnir geirar þar sem reglur og eftirfylgni þeirra hafa verið færð undir önnur yfirvöld:

Í Lýðveldinu Búlgaríu heyrir opinber stefna um vinnuverndarmál undir ráðherraráðið. Atvinnu- og félagsmálaráðherrann þróar, samræmir og sér um framkvæmd opinberrar stefnu í vinnuverndarmálum. Heilbrigðisráðuneytið heldur utan um og samræmir starfsemi fyrir verndun og eflingu heilbrigðis á vinnustöðum. Almenna framkvæmdarstofnun vinnueftirlitsins er sá opinberi aðili sem ber ábyrgð á almennu eftirliti með því að vinnumálalöggjöfinni sé fylgt svo að öryggi og heilbrigði á vinnustöðum sé tryggt ásamt framkvæmd á skilyrðum til atvinnu.

Þýska kerfið fyrir vinnuverndarmál hefur tvíþætta uppbyggingu. Það nær yfir öryggis- og heilbrigðisákvæði alríkisins (á vettvangi sambandsríkisins og landanna) og sjálfstæðar slysatryggingastofnanir. Ríkið (á vettvangi sambandsríkisins og landanna) sér um framkvæmd löggjafarinnar og kemur reglugerðum og reglum ríkisstjórnanna á framfæri. Eftir þarfakönnun senda slysatryggingastofnanirnar, með samþykki ríkisstjórna sambandsríkisins og landanna, frá sér sínar eigin slysaforvarnareglur.

Helstu stoð upplýsinga um vinnuverndarmál í Eistlandi má finna í lögum um vinnuverndarmál, sem samþykkt voru af eistneska þinginu - Riigikogu - en á grundvelli þeirra hafa fjölmargar reglugerðir stjórnvalda og félagsmálaráðherrans verið búnar til og settar (lögin tóku gildi 26. júlí 1999). Í vinnuverndarkerfi Eistlands er framkvæmdarvaldið á hendi félagsmálaráðuneytisins en það setur reglur fyrir allt sviðið en tvær af einingum þess (deild fyrir þróun vinnulífs og heilsugæsludeildin) taka með beinum hætti þátt í stefnumörkun á sviði vinnuverndar.

Starf heilbrigðis- og öryggisyfirvalda miða að því að breyta menningunni með viðvarandi hætti. Menning þar sem, að allra áliti, frumkvæði í stjórnun vinnustaðaöryggis, -heilbrigðis og -velferðar er talið mikilvægt framlag til langvarandi árangurs allra fyrirtækja eða stofnana. Við teljum að ef við stöndum fyrir framtíðarsýn og stefnumörkum munum við ná að breyta menningunni með þessum hætti.

Öll málefni, er snerta vinnuvernd á innlendum vettvangi falla undir atvinnu- og almannatryggingaráðuneytið. Stjórnarsvið vinnuaðstæðna og heilbrigðis, sem ber ábyrgð á vinnuverndarlöggjöf, stefnumörkun, skipulagningu, upplýsingagjöf, menntun, þjálfun og rannsóknum, og vinnueftirlitið (S.EP.E), sem er eftirlits- og fullnustuyfirvaldið fyrir framkvæmd atvinnulöggjafarinnar, eru helstu yfirvöld ríkisins á þessu sviði.

Reglur um tengilið Vinnuverndarstofnunar Evrópu á Spáni fyrir hættuforvanir á vinnustöðum má finna í lögum 31/95 og reglugerðum sem eru lögunum til fyllingar eða frekari þróunar.