Norsku löggjöfinni á sviði vinnuumhverfismála er ætlað að tryggja örugg vinnuskilyrði, öruggt vinnuumhverfi og þroskandi vinnuaðstæður fyrir alla starfsmenn. Fyrirtækin sjálf bera ábyrgð á því að koma í veg fyrir vinnutengd slys og heilbrigðisskaða. Atvinnurekendur bera ábyrgð á því að tryggja að vinnuumhverfið og staða öryggismála sé viðeigandi og fullnægjandi. Yfirvöld aðstoða með því að tryggja að fyrirtæki framkvæmi kerfisbundna starf í tengslum við heilbrigðis- öryggis- og umhverfismál (HSE).
Í Sviss er helsta löggjöfin um vinnuverndarmál tvenns konar. Atvinnulöggjöfin fjallar um vinnutíma, heilbrigðisvernd, byggingastaðla fyrir vinnustaði og verndun persónulegra heilinda. Slysatryggingarlöggjöfin fjallar um forvarnir gegn vinnuslysum og sjúkdómum sem stafa nær eingöngu af vinnu fólks. Vinnueftirlit kantónanna, SUVA (helsta slystryggingarstofnunin) og ríkisskrifstofa efnahagsmála (SECO) sjá um framfylgni laganna. Samræmingarnefnd (EKAS) hefur eftirlit með og fjármagnar eftirlitskerfi slysaforvarna.
Vinnumálaráðuneytið og félagsmálaráðuneytið (e. Ministry of Labour and Social Policy - MoLSP) er landstengiliður og er opinber fulltrúi EU-OSHA í Norður-Makedóníu. Hlutverk MoLSP er að skapa og innleiða stefnu á sviði vinnumarkaðar, almannatrygginga, jafnréttismála, verndar og forvarna gegn mismunun, í samræmi við alþjóðlega staðla og meginreglur.
The Ministry of Family, Labour and Social Services is the main responsible organization in the field of OSH, in collaboration with other ministries and stakeholders, and is responsible for developing, implementing and enforcing legislation.
The focal point on behalf of the Ministry is the Directorate General of Occupational Safety and Health. The Directorate General;
EU-OSHA vinnur að því að koma á tengiliði
Nafnið Kósovó er með fyrirvara um afstöðu varðandi réttarstöðu, og er í samræmi við UNSCR 1244/1999 og álit Alþjóðadómstólsins í Haag um sjálfstæðisyfirlýsingu Kósovó.
Eftirlit með framkvæmd laga um vinnustaðaöryggi („Lögbirtingarblað lýðveldisins Svartfjallalands“ nr. 79/04) og reglugerða, sem byggja á svipuðum og öðrum ráðstöfunum fyrir vinnustaðaöryggi, er á hendi atvinnu- og félagsmálaráðuneytis Svartfjallalands og framkvæmt af vinnueftirlitinu ef lögin kveða ekki á um a' eftirlit með framkvæmd slíkra reglna í sérstökum greinum sé framkvæmt af öðrum yfirvöldum. Deild vinnueftirlitsmála er hluti af vinnueftirlitinu. Deildinni er stýrt af aðalvinnueftirlitsmanninum.
Í Lýðveldinu Serbíu heyra vinnuverndarmál undir atvinnu- og félagsmálaráðuneytið. Í ráðuneytinu eru tvær stofnanir, sem starfa á þessu sviði, einkum vinnuöryggis- og heilbrigðisdeildin, sem meðal annars undirbýr löggjöf og vinnueftirlitið sem ber ábyrgð á eftirliti með því að lögunum sé framfylgt.
Ábyrgð vinnuverndarmála í Austurríki liggur hjá ýmsum stofnunum. Lagagrundvöllinn má finna í lögum um verndun öryggis og heilbrigðis á vinnustöðum [ArbeitnehmerInnenschutzgesetz] og fylgjandi reglugerðum. Vinnueftirlitið, vinnueftirlitið fyrir flutninga (VAI), landbúnaðar- og skógaeftirlitsstofnanirnar í héruðunum (löndunum) og stofnanir, sem þjónusta starfsmenn opinbera geirans, bera ábyrgð á eftirliti með því að lögum um vinnuvernd sé framfylgt.
Í Póllandi má finna grunnlöggjöf um öruggar og heilbrigðar vinnuaðstæður í stjórnarskrá lýðveldisins Póllands. Framkvæmdin á þessum réttindum er skilgreind í lögum, þ.e.a.s. vinnulöggjöfinni. Helstu reglur laganna á sviði vinnuverndarmála má finna í X. kafla laga um vinnuverndarmál, VII. kafla um vernd kvenna á vinnustöðum og í IX. kafla um vernd ungs fólks á vinnustöðum. Skipulagi vinnuverndarkerfisins má skipta niður í kerfi á landsvísu og kerfi þvert á vinnustaði.