Á Ítalíu fellur stofnanakerfi vinnuverndarmála undir atvinnu- og heilbrigðismálaráðuneytið í samstarfi við samræmingarnefndir í héruðum og aðila vinnumarkaðarins. Ábyrgð þeirra felst meðal annars í ráðgjöf þegar kemur að þróun löggjafar, eftirliti, heilsueflingu og aðstoð við fyrirtæki.
Vinnueftirlitsdeildin er innlendi tengiliðurinn fyrir Kýpur.
Deildin starfar undir atvinnu- og almannatryggingaráðuneytinu. Grunnmarkmið deildarinnar á sviði vinnuverndarmála er að tryggja viðeigandi og fullnægjandi öryggi og heilbrigði á vinnustöðum í því skyni að koma í veg fyrir eða snarlækka fjölda vinnuslysa og vinnusjúkdóma og vernda almenning gegn hættum af atvinnustarfsemi.
Vinnueftirlit ríkisins hefur umsjón með tengiliðinum. Flæði upplýsinga er stjórnað af upplýsingastjórninni, sem samanstendur af vinnuverndarfulltrúum frá velferðarráðuneytinu, vinnueftirliti ríkisins, lettneska stéttarfélaginu, samtökum lettneskra atvinnurekenda ásamt vinnuöryggis- og umhverfisstofnuninni (e. Institute of Occupational Safety and Environmental Health, IOSEH).
Í Litháen er innlend stefna á sviði vinnuverndarmála framkvæmd af almannatrygginga- og atvinnumálaráðuneytinu (ásamt heilbrigðisráðuneytinu).
Lúxemborg er aðili að evrópsku ráðgjafarnefndinni fyrir öryggi og heilbrigði (ACSH), sem er þríhliða nefnd.
Upplýsingar um hvernig hafa megi samband við tengiliðinn
Ungverska ríkisstjórnin hefur útnefnt ráðherra atvinnumála og umdæmisskrifstofur stjórnvaldsskrifstofa til að sjá um stjórnsýslu sem yfirvöld sem eiga við vinnuvernd og launþegamál.
Innlenda stofnunin, sem ber ábyrgð á vinnuverndarmálum á Möltu, er vinnuverndarstofnunin (OSHA), sem komið var á fót með OSHA lögum XXVII frá árinu 2000. OSHA samanstendur af stjórnarmönnum, sem tilnefndir eru af ráðherra í samráði við þrískipta nefnd sem fyrst og fremst er skipuð fulltrúum atvinnurekenda, launþega og stéttarfélaga. Til viðbótar samanstendur stofnunin af framkvæmdarstjórn sem sér um eftirfarandi starf:
Í Hollandi bera vinnuveitendur og starfsmenn innan fyrirtækis meginábyrgð á vinnuvernd (OSH). Þeir þurfa að ná samkomulagi um vinnuskilyrði og njóta stuðnings frá stéttarfélögum og viðskiptasamtökum atvinnugreina við mótun viðeigandi ráðstafana í vinnuvernd. Þessi vinnuskilyrði eru talin upp í lögum um vinnuskilyrði (Arbowet), sem kveða á um grundvallarlög um vinnuvernd í Hollandi.
Landsskrifstofan í Portúgal er á vegum ACT – stofnunar á sviði vinnuaðstæðna en hún heyrir beint undir ráðuneyti samstöðu, atvinnu- og almannatryggingamála en nýtur stjórnunarlegs sjálfræðis á öllu meginlandinu. Megintilgangur ACT er að efla úrbætur á vinnuaðstæðum með því að kynna stefnur um forvarnir gegn vinnuverndarhættum og tryggja að vinnustöðlum og reglum sé fylgt, er varða vinnuverndarmál í öllum geirum atvinnulífsins svo og hjá miðlægum og staðbundnum stjórnsýslustofnunum þar á meðal opinberum stofnunum.
Í Rúmeníu falla vinnuverndarmál undir ráðuneyti atvinnu-, fjölskyldumála og félagslegt öryggi. Meginábyrgðin: að leggja drög að innlendri stefnu og stefnumörkun á sviðinu, semja drög að normatískum lögum fyrir framkvæmd innlendrar stefnumörkunar og hafa eftirlit með að löggjöfinni sé framfylgt. Vinnueftirlitið hefur eftirlit með að vinnuverndarlöggjöf sé fylgt.