EU-OSHA vinnur að því að koma á tengiliði
EU-OSHA vinnur að því að koma á tengiliði
Nafnið Kósovó er með fyrirvara um afstöðu varðandi réttarstöðu, og er í samræmi við UNSCR 1244/1999 og álit Alþjóðadómstólsins í Haag um sjálfstæðisyfirlýsingu Kósovó.
Eftirlit með framkvæmd laga um vinnustaðaöryggi („Lögbirtingarblað lýðveldisins Svartfjallalands“ nr. 79/04) og reglugerða, sem byggja á svipuðum og öðrum ráðstöfunum fyrir vinnustaðaöryggi, er á hendi atvinnu- og félagsmálaráðuneytis Svartfjallalands og framkvæmt af vinnueftirlitinu ef lögin kveða ekki á um a' eftirlit með framkvæmd slíkra reglna í sérstökum greinum sé framkvæmt af öðrum yfirvöldum. Deild vinnueftirlitsmála er hluti af vinnueftirlitinu. Deildinni er stýrt af aðalvinnueftirlitsmanninum.
Í Lýðveldinu Serbíu heyra vinnuverndarmál undir atvinnu- og félagsmálaráðuneytið. Í ráðuneytinu eru tvær stofnanir, sem starfa á þessu sviði, einkum vinnuöryggis- og heilbrigðisdeildin, sem meðal annars undirbýr löggjöf og vinnueftirlitið sem ber ábyrgð á eftirliti með því að lögunum sé framfylgt.
Ábyrgð vinnuverndarmála í Austurríki liggur hjá ýmsum stofnunum. Lagagrundvöllinn má finna í lögum um verndun öryggis og heilbrigðis á vinnustöðum [ArbeitnehmerInnenschutzgesetz] og fylgjandi reglugerðum. Vinnueftirlitið, vinnueftirlitið fyrir flutninga (VAI), landbúnaðar- og skógaeftirlitsstofnanirnar í héruðunum (löndunum) og stofnanir, sem þjónusta starfsmenn opinbera geirans, bera ábyrgð á eftirliti með því að lögum um vinnuvernd sé framfylgt.
Í Póllandi má finna grunnlöggjöf um öruggar og heilbrigðar vinnuaðstæður í stjórnarskrá lýðveldisins Póllands. Framkvæmdin á þessum réttindum er skilgreind í lögum, þ.e.a.s. vinnulöggjöfinni. Helstu reglur laganna á sviði vinnuverndarmála má finna í X. kafla laga um vinnuverndarmál, VII. kafla um vernd kvenna á vinnustöðum og í IX. kafla um vernd ungs fólks á vinnustöðum. Skipulagi vinnuverndarkerfisins má skipta niður í kerfi á landsvísu og kerfi þvert á vinnustaði.
Í Slóveníu falla vinnuverndarmál innan vébanda ráðuneytis atvinnu-, fjölskyldu- og félagsmála og jafnra tækifæra svo og heilbrigðisráðuneytisins. Þessi tvö ráðuneyti fylgjast með og leggja mat á stöðuna á fyrrnefndu sviði og á þeim grunni leggja þau drög að reglugerðum og lausnum fyrir staðlaðar reglugerðir um vinnuverndarmál. Vinnueftirlitið hefur umsjón með innleiðingu reglugerða á þessu sviði í Slóveníu.