Ef börn byrja að læra um öryggi og heilbrigði um leið og þau læra að lesa og skrifa verður það náttúrulegur hluti af vinnu þeirra, leik og lífi. Þau þróa með sér gott viðhorf í garð öryggis og heilbrigðis sem fylgir þeim út starfsævina.

Byrjaðu ungur, vertu öruggur: árangursrík vinnuverndarfræðsla

Best er að samþætta vinnuvernd við einstakar námsgreinar í stað þess að kenna hana sem sjálfstætt efni. Virknibyggt nám og dæmi úr raunveruleikanum munu hjálpa til við að koma skilaboðunum á framfæri við börn og ungt fólk. Hægt er að endurtaka helstu skilaboð með mismunandi hætti hjá mismunandi aldurshópum, hvort sem um er að ræða í grunnskólum eða iðnskólum.

Besta módelið er heilskólanálgunin. Samþætting vinnuverndar við frekari menntun er erfiðara og ekki eins þróað, einkum í háskólum. Hins vegar gildir sama módelið um „heilskólann“. Samstarf og samvinna við vinnuverndaryfirvöld eru helstu þættirnir fyrir árangursríkri samþættingu.

Samþætting vinnuverndar við skólalíf

Heilskólanálgunin sameinar menntun og skólastjórnun. Nemendur og starfsmenn vinna saman að því að gera skólann að öruggari og heilbrigðari stað til að vinna og læra á í gegnum:

  • Áhættufræðslu og vinnuverndarstjórnun, t.d. hafa nemendur með í að finna hættur
  • Heilbrigðisfræðslu og eflingu, t.d. verkefnin heilbrigðir skólar
  • Efla virðingu og reisn gagnvart öllum, t.d herferðir gegn einelti
  • Umhyggja fyrir umhverfinu, t.d. endurnotkun og endurvinnsla

Ábendingar fyrir árangursríka samþættingu

Við vitum frá raundæmum hvað hjálpar til við að láta heilskólanálgunina virka:

  • Forysta frá yfirkennara til þess að hvetja áfram starfsfólk og nemendur
  • Láta nemendur, foreldra og starfsmenn taka þátt
  • Veita hagnýtan stuðning og tól; úrræðið
    Napó fyrir kennara
    hefur reynst gagnlegt í þeim efnum
  • Þjálfun fyrir kennara
  • Samstarf á milli skóla
  • Samstarf á milli vinnuverndar- og fræðsluyfirvalda
  • Með hagnýtri hugsun og tengja áhættufræðslu við námsefni

Frekari upplýsingar:

Þessar yfirlýsingar eru samþykktar af stjórninni sem hluti af fyrirtækjastefnu okkar. Þær sýna hvernig stjórnin vill að stofnunin framfylgi umboði sínu.

Hlutverk okkar

Við þróum, söfnum og veitum áreiðanlegar og viðeigandi upplýsingar, greiningar og tól til þess að auka þekkingu, vitund og miðla vinnuverndarupplýsingum og góðum starfsháttum í þágu þeirra sem hafa með vinnuvernd að gera.

Sýn okkar

Að verða viðurkenndur sem forystuaðili við að efla heilbrigða og örugga vinnustaði í Evrópu á grundvelli þríhliða samvinnu og þróun á fyrirbyggjandi vinnuverndarmenningar, að tryggja hugvitsamlegt, sjálfbært og afkastamikið hagkerfi fyrir alla.

EU-OSHA er upplýsingastofnun Evrópusambandsins á sviði vinnuverndar. Vinna okkar stuðlar að stefnuramma Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um vinnuvernd 2021-2027 og öðrum viðeigandi stefnum og áætlunum ESB.

Frekari upplýsingar er að finna í fyrirtækjastefnu og vinnuáætlunum okkar og í stofnreglugerðinni.

Aðildarríkin mega samþykkja strangari reglur til þess að vernda launþega sína en löggjöf þeirra þarf að vera í samræmi við lágmarksstaðlana. Af þeim sökum er löggjöf á sviði öryggis- og heilbrigðismála mismunandi í Evrópu.

Listi yfir innlendar framkvæmdarráðstafanir má finna í lok ágrips hverrar tilskipunar. í hluta EU-OSHA um evrópskar tilskipanir. Ef þú til dæmis velur rammatilskipunina um vinnuverndarmál, þá finnur þú neðst á síðunni hlekk á vefsíðu EUR-Lex þar sem talin eru upp lög þjóðríkjanna um framkvæmd á tilskipuninni.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur látið gera mat á hagnýtri framkvæmd öryggis- og heilbrigðiskerfis ESB (OSH) í aðildarríkjum ESB (2015) sem einnig er tekin saman í styttri útgáfu í samrunaskýrslu.

Frekari upplýsingar um vinnuverndarlöggjöf þjóðríkjanna má einnig finna í greinum OSHwiki um kerfi hvers þjóðríkis.

Frekari upplýsingar um löggjöf þjóðríkjanna má fá með því að hafa samband við viðeigandi landsskrifstofu EU-OSHA í því aðildarríki sem þú hefur áhuga á.

Evrópskar tilskipanir kveða á um lágmarkskröfur og grundvallarmeginreglur eins og meginregluna um forvarnir og áhættumat, ásamt ábyrgð atvinnurekenda og launþega. Röð evrópskra viðmiðunarreglna miða að því að auðvelda innleiðingu á evrópskum tilskipunum ásamt Evrópustöðlum sem evrópskt staðlaráð hafa samþykkt.

Stefnurammi ESB um vinnuvernd 2021-2027 sem fjallað var um í aðgerðaáætluninni Evrópustoð félagslegra réttinda kveður á um helstu forgangsmál og nauðsynlegar aðgerðir til að bæta heilbrigði og öryggi launþega. Ramminn styðst við þríhliða nálgun og leggur áherslu á þrjú meginmarkmið: sjá fyrir og hafa stjórn á breytingum, bæta forvarnir og auka viðbúnað.

Frekari upplýsingar um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum má einnig finna á vefsíðu stjórnarsviðs atvinnu- og félagsmála hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

Eftirfarandi hlutar innihalda upplýsingar um Evrópulöggjöf, framkvæmd hennar og önnur hagnýt skjöl um vinnuverndarmál eftir þema.

Hér finnur þú staðreyndir og tölur um vinnuverndarmál út frá niðurstöðum helstu Evrópuverkefna og Fyrirtækjakönnunar Evrópu um nýjar og aðsteðjandi hættur (ESENER) sem EU-OSHA stendur fyrir.

Niðurstöðurnar eru settar fram með notendavænum gagnabirtingartólum sem veita yfirlit yfir áhættustjórnun á vinnustöðum, vinnuaðstæður, lýðfræðilegar upplýsingar og stefnur og stefnumál á sviði vinnuverndar.

Við framkvæmum einnig skoðanakannanir til að skilja betur hvað fólki finnst um vinnuumhverfi sitt en niðurstöðurnar má finna fyrir neðan.

Öflun þessara staðreynda og talna er hornsteinninn í vinnu okkar en niðurstöðurnar hjálpa stefnumótendum og vísindamönnum við að bera kennsl á aðsteðjandi hættur.

Hér má finna öll helstu úrræði okkar við að auka vitund og stjórna vinnuverndarhættum.

OiRA, sem einfaldar mat og stjórnun á vinnuverndarhættum; OSHwiki sem inniheldur mikið af upplýsingum um allt sem tengist vinnuvernd; rafrænir leiðarvísar sem veita leiðbeiningar um vinnuverndarstjórnun; upplýsingamyndir; verkfærakista herferðarinnar; Napo kvikmyndir og Napo fyrir kennara; gagnabirtingartól og önnur hagnýt verkfæri og leiðbeiningar.

16/06/2014

Sækjain: en | bg | cs | da | de | nl | et | el | es | fr | hr | it | is | lv | lt | hu | mt | no | pl | pt-pt | ro | sk | sl | fi | sv |