Svik forvarnir

Í því skyni hefur stofnunin samþykkt  ítarlegra stefnu gegn svikum sem skilgreinir ábyrgð ýmissa hagsmunaaðila.

Það er í samræmi við fjárhagsreglugerð stofnunarinnar (30. og 111. grein) og kröfurnar í vegakortinu fyrir eftirfylgni við almennu nálgunina á framtíð stofnana Evrópusambandsins á vegum sameiginlega stofnanavinnuhópsins

Nytsamlegir hlekkir

Forvarnir og stjórnun hagsmunaárekstra

EU-OSHA leitast við að tryggja réttmæti ákvarðana og upplýsinga og stuðla að ábyrgð í tengslum við vinnu og starfsemi stofnunarinnar. Af þessum ástæðum skipta forvarnir og stjórnun hagsmunaárekstra miklu máli.

Við tilnefningu og á 4 ára fresti senda meðlimir stjórnar og framkvæmdastjórnar inn yfirlýsingu um hagsmuni og að engir hagsmunaárekstrar séu fyrir hendi í samræmi við stefnu stofnunarinnar um forvarnir og stjórnun á hagsmunaárekstrum. Upplýsingarnar má finna á vefsíðunni. Sömu ákvæði gilda um utanaðkomandi sérfræðinga.

Auk þessa eru yfirlýsingar framkvæmdastjórans og æðstu starfsmanna um enga hagsmunaárekstra einnig aðgengilegar almenningi til þess að tryggja gagnsæi.

Gagnlegir hlekkir

Stefna stofnunarinnar um stjórnun hagsmunaárekstra

Samþykki á yfirlýsingu stjórnar, framkvæmdastjórnar og ráðgjafanefnda um enga hagsmunaárekstra

Samþykki á yfirlýsingu framkvæmdastjóra og æðstu starfsmanna um enga hagsmunaárekstra

Good Practices for the Management Board members at EU-OSHA

EU-OSHA er með landsskrifstofur í hverju aðildarríki og eru upplýsingar um þær opnar öllum.

Landsskrifstofurnar, sem eru tilnefndar af viðkomandi stjórnvöldum sem opinber fulltrúi EU-OSHA í viðkomandi landi, eru venjulega lögbært yfirvald á sviði vinnuverndarmála og helsti framkvæmdaaðili á starfsáætlunum EU-OSHA.

Hver er lagagrunnur landsskrifstofanna?

Reglugerð ráðsins (EB) nr. 2062/94 frá 18. júlí 1994 um stofnun Vinnuverndarstofnunar Evrópu kveður á um stofnun landsskrifstofa sem er lögbært innlent yfirvald eða innlend stofnun sem það hefur tilnefnt.

Landsskrifstofunni ber skylda til að hafa hliðsjón af skoðunum aðila vinnumarkaðarins innanlands í samræmi við innlenda löggjöf og/eða venjur.

Hvernig starfa landsskrifstofurnar?

Hver landsskrifstofa heldur uppi eigin þrískiptu samstarfsneti með aðilum stjórnvalda og fulltrúum samtaka atvinnurekenda og launþega. Innlenda samstarfsnetið endurspeglar aðstæður í aðildarríkinu og er ekki kveðið á um af EU-OSHA.

Samstarfsnetið veitir innlegg í vinnu EU-OSHA og hjálpar til við að miðla vörum og upplýsingum til innlendra hagsmunaaðila. Auk þess eru landsskrifstofurnar virkar í áætlanagerð og framkvæmd á herferðum EU-OSHA ásamt því að tilnefna innlenda sérfræðinga í hópa og málstofur stofnunarinnar.

Hvað um ríki önnur en aðildarríki?

Noregur, Ísland og Liechtenstein, sem EES-lönd eru líka með landsskrifstofur sem taka að fullu þátt í samstarfsneti landsskrifstofa EU-OSHA og eru meðhöndluð á sama hátt og aðildarríki. Sviss, sem EFTA-land, tekur einnig þátt í samstarfsneti landsskrifstofa EU-OSHA.

EU-OSHA er einnig með landsskrifstofur í Vestur-Balkanlöndum og Tyrklandi í gegnum verkefni sem fjármagnað er af fjármögnunarleið við foraðildarstuðning (IPA). Núna eru það eftirfarandi lönd sem taka þátt: Albanía, Bosnía og Hersegóvína, Norður-Makedónía, Kósóvó (í samræmi við UNSCR 1244/99), Svartfjallaland, Serbía og Tyrkland.

Tilgangur þessa samstarfs er að undirbúa þessi lönd fyrir framtíðar heildar þátttöku í samstarfsneti EU-OSHA og að stuðla að þróun forvarnarmenningar. Studdar aðgerðir eru að mestu tengdar upplýsingaskiptum og vitundarvakningu um vinnuvernd í samræmi við Vinnuvernd er allra hagur herferðirnar.

Vinnuverndarstofnun Evrópu hefur búið til verkfærakistu fyrir vinnuverndarherferðir, sérstaka vefsíðu til þess að bjóða upp á leiðbeiningar, lið fyrir lið, við undirbúning og framkvæmd á áhrifaríkum kynningarherferðum á sviði vinnuverndarmála, án tillits til þess hversu stórt fyrirtækið þitt er.

Hún er auðveld í notkun og inniheldur alla nauðsynlega ráðgjöf til þess að standa að herferð.

Hvernig á að nota hana?

Verkfærakistan aðstoðar við að undirbúa herferð og ákvarða:

  • Skilaboð
  • Markhóp
  • Landfræðilega dreifingu
  • Fjárhagsáætlun og fleira

En þetta eru ekki strangar reglur til að fylgja. Í staðinn veitir verkfærakistan ráðleggingar, sem velja má úr, og aðlaga svo að þær henti hverju fyrirtæki og einstökum kringumstæðum.

Tól og dæmi

Verkfærakistan bendir á úrræði til þess að hjálpa til við að gera herferðina árangursríka, þar á meðal tól fyrir:

  • Samskipti við fjölmiðla
  • Auglýsing
  • Viðburðir

Hún býður upp á ráð og brellur og veitir dæmi úr raunheimum um notkun þeirra.

Þúsundir fyrirtækja og stofnanna í Evrópu hafa verið beðin að fylla út spurningalista sem beinir sjónum sínu að:

Niðurstöðurnar úr þessum viðtölum eru studdar af greiningu á fyrirliggjandi gögnum sem byggja á ítarlegum rannsóknum sem beina sjónum sínum að ákveðnum efnum. Í þessum rannsóknum er beitt eigindlegri og megindlegri aðferðafræði til að öðlast betri skilning á helstu niðurstöðum rannsóknarinnar.

ESENER 2024

ESENER 2019

ESENER 2014

ESENER 2009

Nýr á vinnustaðnum, ungt fólk kann að skorta reynslu og skortir oft bæði líkamlegan og sálfræðilegan þroska. Það kann að taka áhættur, sem það stendur andspænis, ekki nægjanlega alvarlega. Aðrir þættir sem setja ungt fólk í aukna áhættu eru meðal annars:

  • Ófullnægjandi fagþekking og þjálfun
  • Þekkja ekki réttindi sín og skyldur atvinnurekenda
  • Búa ekki yfir sjálfsöryggi til þess að segja hug sinn
  • Atvinnurekendur sem viðurkenna ekki þörf ungs starfsfólks á aukinni vernd

EU-OSHA býr til tölfræði, fylgist með áhættum gegn ungu fólki og styður við miðlun góðra starfsvenja til þess að verja það á vinnustöðum.

Réttindi atvinnurekenda og ábyrgð

Það er á ábyrgð atvinnurekenda að vernda öryggi og heilbrigði starfsmanna og ættu þeir að gefa ungum starfsmönnum sérstakan gaum. Þeir þurfa að framkvæma áhættumat áður en ungur einstaklingur hefur vinnu og gera ráðstafanir til þess að vernda þá.

Ungir starfsmenn ættu að fá vinnu við hæfi og fá fullnægjandi þjálfun og leiðsögn. Atvinnurekendur ættu að stuðla að kraftmikilli öryggismenningu og hafa unga starfsmenn með í ráðum varðandi öryggisatriði. Sérstakar reglur gilda um ungt starfsfólk undir 18 ára aldri.

Tilskipun ráðsins 94/33/EB kveður á um lagalegar skyldur atvinnurekenda. Kveðið er á um skyldurnar í reglugerðum hvers aðildarríkis. Innlendar vinnuverndarstofnanir og stéttarfélög eru góð uppspretta upplýsinga.

Lesa staðreyndablaðið fyrir atvinnurekendur.

Réttindi og ábyrgð ungra starfsmanna

Ungt fólk á rétt á því að spyrja spurninga, vekja athygli á vandamálum og neita að framkvæma óörugga vinnu.

Á sama tíma ber því skylda til þess að fylgja vinnuverndarstefnum og huga að eigin öryggi og öryggi samstarfsmanna.

Ef þú ert ungur starfsmaður og ert með vandamál er mikilvægasta atriðið að segja einhverjum frá því. Talaðu við yfirmanninn þinn ef þú getur. Ef þú getur það ekki, talaðu við öryggisfulltrúann, vinnuverndarstarfsfólk, foreldri, fjárhaldsmann eða samstarfsmann sem þú treystir. Innlendar vinnuverndarstofnanir og stéttarfélög eru góð uppspretta upplýsinga.

Lesa staðreyndablaðið fyrir unga starfsmenn.

Hjálp fyrir kennara og foreldra

Kennarar leika mikilvægt hlutverk. Ef þeir geta myndað gott viðhorf í garð og skilning á áhættuforvörnum hjá ungu fólki strax á unga aldri, hjálpa þeir til við að halda þeim öruggum út lífið.

Með því að nota hinn sívinsæla Napó hefur EU-OSHA búið til röð tólakistu fyrir kennara til að fræða um vinnuverndarmál, sem miðar að því að kynna vinnuvernd fyrir grunnskólabörnum með fræðandi en skemmtilegum og hugmyndaríkum hætti með því að nota Napó stikurnar og skapandi starfsemi.

Kennarar sem taka þátt í skipulagningu á starfsþjálfun eða störfum til að fá vinnureynslu ættu að skoða öryggis- og heilbrigðisfyrirkomulag hjá atvinnurekendum þeirra.

Fræðast meira um samþættingu á öryggi og heilbrigði við menntun.

Foreldrar geta stutt við ungt fólk með því að tryggja að þeir skilji réttindi þeirra og skyldur. Foreldrar geta einnig hjálpað með því að tala við þau um vinnu og skóla og öryggi þeirra og heilbrigði.

Lesa staðreyndablaðið fyrir foreldra.

Slíkur munur getur haft áhrif á hætturnar, sem menn og konur standa andspænis á vinnustöðum og hvernig eigi að leggja mat á og hafa stjórn á þeim. Það er af þessum ástæðum sem EU-OSHA rannsakar og eykur vitund um vinnuverndarmál sem konur standa frammi fyrir á vinnustöðum.

Munur sem getur haft áhrif á vinnuvernd

Það er munur sem getur haft áhrif á áhætturnar sem menn og konur standa andspænis. Kvenmenn:

  • Vinna í ákveðnum geirum og ákveðin gerð vinnu
  • Jafnvægi á milli skyldna heimilis og vinnu
  • Eru með of lágt hlutfall í stjórnendastöðum
  • Eru líkamlega frábrugðnar karlmönnum, þó að oft sé meiri munur á milli kvenna en á milli karla og kvenna, til dæmis í líkamlegum styrk.
  • Sinna störfum sem oft eru ranglega talin örugg og auðveld

Oft er þessi munur ekki viðurkenndur í framkvæmd á öryggis- og heilbrigðismálum. Það sem meira er að þá er vinnuálag og streitutengdar áhættur gegn konum á vinnustöðum oft vanmetnar. EU-OSHA miðar að því að benda á þennan mun og hjálpa til við að bæta vinnuvernd á sviðum sem hafa mest áhrif á konur.

Hvað geta atvinnurekendur gert

Kynbundin nálgun að vinnuvernd þýðir að viðurkenna og taka mið af muninum á milli karla og kvenna.

Atvinnurekendur geta:

  • Miðað að því að gera vinnuna öruggari og auðveldari fyrir alla.
  • Haft kynbundin málefni með í áhættumatinu
  • Skoðað þá raunverulegu vinnu, sem framkvæmd er, og forðast ályktanir um hver sé í áhættu og hvers vegna
  • Boðið upp á sveigjanlegan vinnutíma
  • Haft konur með í ákvarðanatöku á sviði vinnuverndarmála

Þessi nálgun gagnast öllum starfsmönnum, ekki bara konum.

Lesa staðreyndablað EU-OSHA fyrir starfsmenn um kynbundin málefni og áhættumat.

Hlutverk EU-OSHA

Helsta markmiðið er að hjálpa til við að tryggja að kynbundin málefni séu höfð til hliðsjónar við stefnumótun og ákvarðanatöku á vinnustöðum á hjá Evrópusambandinu. EU-OSHA rannsakar kynbundnar áhættur og þróun með virkum hætti. Þar á meðal eru rannsóknir sem beinast að geirum þar sem konur vinna, eins og ræstingu, og áhættum sem konur standa sérstaklega frammi fyrir. Við samþættum — einnig — kynjamál við önnur rannsóknarsvið.

Við bjóðum upp á tól og ráð til þess að hjálpa atvinnurekendum við að auðkenna og framkvæma kynbundið áhættumat.

Sjá einnig rannsóknir EU-OSHA á nýjum áhættum og þróun á öryggi og heilbrigði kvenna á vinnustöðum og fræðast um leiðbeiningar um góða starfshætti og tól fyrir áhættumat.

Vinnutengd stoðkerfisvandamál hafa fyrst og fremst áhrif á bak, háls, axlir og efri útlimi en geta einnig haft áhrif á neðri útlimi. Þau ná yfir allar skemmdir eða raskanir á liðum eða öðrum vefjum. Heilsufarsvandamál eru allt frá minni verkjum og sársauka yfir í alvarlegri sjúkdóma sem krefjast tíma frá vinnu eða læknisfræðilegrar meðferðar. Í krónískari tilvikum geta þau einnig leitt til örorku og þarfarinnar á því að hætta vinnu.

Orsakir stoðkerfisvandamála

Flest vinnutengd stoðkerfisvandamál þróast með tímanum. Venjulega er engin ein sérstök ástæða fyrir stoðkerfisvandamálum; ýmiss konar áhættuþættir eru samverkandi, þar á meðal líkamlegir og lífaflfræðilegir þættir, skipulagslegir og sálfélagslegir þættir svo og einstaklingsbundnir þættir.

Líkamlegir og lífaflfræðilegir áhættuþættir eru meðal annars:

  • Meðhöndlun á byrðum, einkum þegar fólk beygir sig eða snýr sér
  • Endurteknar eða kröftugar hreyfingar
  • Skringileg og kyrrstæð líkamsstaða
  • Titringur, léleg lýsing eða kalt vinnuumhverfi
  • Hröð vinna
  • Stöðug seta eða staða í sömu líkamsstöðu

Skipulagslegir og sálfélagslegir áhættuþættir eru meðal annars:

  • Miklar kröfur í vinnunni og lítil sjálfstjórn
  • Skortur á hléum eða tækifærum til að skipta um líkamsstöðu
  • Vinna á miklum hraða, einnig af völdum innleiðingar á nýrri tækni
  • Langar vinnustundir eða vaktavinna
  • Einelti, áreitni og mismunun á vinnustaðnum
  • Lítil ánægja í starfi

Almennt geta allir sálfélagslegir og skipulagslegir þættir (einkum þegar þeir fara saman með líkamlegri áhættu) leitt til streitu, þreytu, kvíða eða annarra viðbragða sem á móti auka áhættuna á stoðkerfisvandamálum.

Einstaklingsbundnir áhættuþættir eru meðal annars:

  • Fyrri sjúkrasaga
  • Líkamleg geta
  • Lífshættir og venjur (t.d. reykingar, skortur á hreyfingu)

Áhættumat

Engin ein lausn er til staðar og stundum kann að vera þörf á sérfræðiráðgjöf fyrir óvenjuleg eða alvarleg vandamál. Hins vegar eru margar lausnir blátt áfram og ódýrar, til dæmis að bjóða upp á kerru til þess að aðstoða við meðhöndlun vara eða breyta staðsetningu hluta á skrifborði.

Til þess að taka á stoðkerfisbandamálum ættu vinnuveitendur að nota blöndu af:

  • Áhættumat: beitir heildrænni nálgun, leggur mat á og tekur á öllum mögulegum orsökum (sjá að ofan) Einnig er mikilvægt að gæta að launþegum sem kunna að vera í aukinni áhættu fyrir stoðkerfisvandamálum. Forgangurinn er að útrýma áhættunni en einnig að laga vinnuna að starfsfólkinu.
  • Þátttaka starfsmanna: hafa starfsmenn og fulltrúa þeirra með í umræðum um möguleg vandamál og lausnir

Frekari upplýsingar um forvarnir gegn vinnutengdum stoðkerfisvandamálum.

Aðgerðaráætlun fyrir forvarnir

Þegar áhættumat hefur verið gert ætti að búa til lista yfir ráðstafanir út frá forgangsstigi og hafa starfsmenn og fulltrúa þeirra með í því að hrinda þeim í framkvæmd. Aðgerðir ættu að beinast að forvörnum en einnig fela í sér ráðstafanir til að draga úr alvarleika líkamstjóns. Það er mikilvægt að tryggja að allir starfsmenn fái viðeigandi upplýsingar, fræðslu og þjálfun um heilbrigðis- og öryggismál á vinnustaðnum og viti hvernig þeir geti forðast sérstakar hættur og áhættur.

Ráðstafanirnar geta náð til eftirfarandi sviða:

  • Hönnun vinnustaðar: aðlögun á skipulagi til þess að bæta líkamsstöðu við vinnu.
  • Búnaður: tryggið að hann sé vinnuvistfræðilega hannaður og henti fyrir verkefnin
  • Verkefni: geri breytingar á vinnuaðferðum eða tólum
  • Stjórnun: skipuleggið vinnuna til þess að forðast endurtekna vinnu eða langvarandi vinnu í lélegri líkamsstöðu. Ráðgerið hvíldarhlé, skiptið um störf eða endurúthlutið vinnu
  • Skipulagsþættir: búið til stefnu um stoðkerfisvandamál til að bæta vinnuskipulag og sálfélagslegt umhverfi vinnustaðarins og stuðla að stoðkerfisheilbrigði

Forvarnir ættu einnig að taka mið af tæknilegum breytingum á búnaði og stafrænum tæknibreytingum á vinnuferlum og breytingum sem því tengjast á vinnuskipulagi.

Einnig þarf að velta fyrir sér heilbrigðiseftirliti, heilsueflingu og endurhæfingu og endurkomu starfsmanna, sem þegar þjást af stoðkerfisvandamálum, í nálgun yfirstjórnenda að stoðkerfisvandamálum.

Rannsóknir á vinnutengdum stoðkerfissjúkdómum

EU-OSHA stóð fyrir vinnuverndaryfirlitsverkefni um vinnutengd stoðkerfisvandamál til margra ára. Markmiðið var að rannsókna vandamál í tengslum við vinnutengd stoðkerfisvandamál, bæta skilning okkar á efninu og auðkenna skilvirkar leiðir til að taka á vinnutengdum stoðkerfisvandamálum. Verkefnið skoðaði einnig stefnur og ráðstafanir á vinnustöðum til að hjálpa til við að koma í veg fyrir vinnutengd stoðkerfisvandamál og stjórna langvinnum stoðkerfisvandamálum, þar á meðal sem styðja launþega í því að snúa aftur til vinnu og endurhæfingu. Vinnuverndaryfirlitsverkefnið tekur á þörf stefnumótenda og rannsakenda og er herferðinni Vinnuvernd er allra hagur 2020-2022 til fyllingar.

Evrópulöggjöf

Evrópskar tilskipanir, vinnuverndarstefnur Evrópusambandsins, reglugerðir aðildarríkja og viðmiðunarreglur um góðar starfsvenjur viðurkenna mikilvægi forvarna gegn stoðkerfisvandamálum.

Vinnutengd stoðkerfisvandamál falla undir rammatilskipun um vinnuvernd en hún miðar að því að vernda launþega gegn vinnutengdum áhættum almennt og kveður á um ábyrgð vinnuveitenda á því að tryggja öryggi og heilbrigði á vinnustaðnum. Fjallað er um sumar áhættur í sérstökum tilskipunum, einkum tilskipuninni um líkamlega meðhöndlun, tilskipuninni um búnað með skjá og tilskipuninni um titring. Tilskipunin um notkun á vinnubúnaði tekur á líkamsstöðum starfsmanna þegar ljóst er að vinnubúnaður krefst þess að starfsmenn taki tillit til meginreglna á sviði vinnuvistfræði til að fylgja lágmarkskröfum á sviði vinnuverndar.

EU-OSHA vaktar tíðni, orsakir og forvarnir gegn stoðkerfisvandamálum. EU-OSHA stuðlar einnig að miðlun á góðum starfsvenjum.

Vinnuvernd (OSH) er oft léleg hjá MSE, og starfsfólk þar á í meiri hættu á að lenda í slysum á vinnustað og eiga við lélega heilsu vegna vinnu að stríða. Vandamálið er í forgangi í vinnuverndaráætlununum á landsvísu, í Rammaáætlun Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og í samhengi ESB stoðar félagslegra réttinda.

Víðtækt verkefni EU-OSHA „Umbætur á vinnuvernd í mjög litlum og litlum fyrirtækjum“ (2014-18) er ætlað að einangra helstu árangurs þætti, í tengslum við stefnur, úrræði og hagnýtar lausnir, til að bæta vinnuvernd í MSE í Evrópu.

Hvað segja rannsóknir okkur um vinnuvernd í MSE?

Fyrsti áfangi verkefnisins leiddi í ljós umfang vinnuverndaráskorana sem MSE standa frammi fyrir í Evrópu og suma þættina sem stuðla að lélegri vinnuverndarstjórnun í þessum fyrirtækjum. Umsögn um útgefið efni Samhengi og tilhögun vinnuverndar í mjög litlum og litlum fyrirtækjum í ESB bendir til „almenns og marghliða skorts á aðföngum“ sem veldur því að umtalsverður hluti MSE leggur stund á ranga viðskiptahætti. Lykil eigindi slíkra fyrirtækja eru léleg fjárhagsstaða; áhyggjur af fjárhagslegri afkomu; skortur á fjárfestingu í vinnuvernd; takmörkuð þekking, meðvitund og hæfi eigenda-stjórnenda; og viðhorf og forgangsröðun sem leggur ekki áherslu á vinnuvernd.

Vinnustaðasjónarhorn

Vinnuverndarviðhorf og -framkvæmd í MSE voru rannsökuð með 360 gráðu djúpviðtölum við bæði starfsfólk og eigendur-stjórnendur. Sum viðhorf sem oft sáust voru afturvirk nálgun við vinnuvernd; hugmyndin að „almenn skynsemi“ sé nógu góð vinnuverndarráðstöfun og trúin á að hættur „séu hluti af starfinu“. Engu að síður fundust einnig dæmi um góðar starfsvenjur.

Lestu skýrsluna Öryggi og heilbrigði í mjög litlum og litlum fyrirtækjum í ESB: Útsýnið frá vinnustaðnum.

Eru góðar starfsvenjur sem við getum byggt á fyrir hendi?

Það eru ýmiskonar dæmi frá allri Evrópu um árangursríkar vinnuverndarstefnur, ráðstafanir og verkfæri sem ná til vinnuverndar í MSE. Meira en 40 slíkum inngripum er lýst ítarlega í Öryggi og heilsa hjá ör- og smáfyrirtækjum í ESB: frá stefnu til framkvæmda — lýsing á góðum dæmum.

Góð dæmi voru rannsökuð nánar til að ákvarða „hvað virkar, fyrir hvern og í hvaða aðstæðum“, þ.m.t. víðtæka möguleika á jákvæðum áhrifum og flytjanleika.

Lestu skýrsluna Frá stefnu til framkvæmdar: stefnur, úrræði, áætlanir og aðgerðir sem styðja vinnuvernd hjá mjög litlum og litlum fyrirtækjum, sem rannsaka einnig upplifun vinnuverndarmilliliða sem vinna hjá MSE.

Hvernig tryggjum við að vinnuverndarstefna og -inngrip nái til MSE?

Heildarniðurstöður verkefnisins hafa verið greindar til að gefa áreiðanlegar ráðleggingar fyrir þróun árangursríkari áætlana og inngripa sem ætlað er að bæta vinnuvernd í MSE. Öryggi og heilbrigði í ör- og smáfyrirtækjum í ESB: Lokaskýrsla frá þriggja 3ja ára SESAME verkefninu bendir á mikilvægi:

  • Þátttöku allra helstu eftirlitsaðila;
  • þess að styrkja eftirlit;
  • Að bjóða upp á sjálfbærar lausnir sem er auðvelt að nota og flytja;
  • Betri samþættingu vinnuverndar inn í geira-sértæk þjálfunarkerfi;
  • Þátttöku verkalýðsfélaga og samtökum vinnuveitenda við þróun stefnumála sem geta náð til MES;
  • Betri tilhögun aðfangakeðju.

EU-OSHA aðstoðar MSE við að leggja mat á vinnustaðaáhættur

Viðeigandi áhættumat er lykillinn að heilbrigðum vinnustöðum. En framkvæmd áhættumats getur verið töluvert flókin, sérstaklega fyrir MSE, þar sem þau kann að skorta úrræði og þekkingu framkvæma hana á árangursríkan hátt.

Gagnvirkt áhættumat á netinu (OiRA) vettvangur EU-OSHA er ætlað að vinna bug á þessu. OiRA er fyrsta framtakið á ESB-vísu sem ætlað er að hvetja MSE (aðallega í gegnum aðildarríki og aðila vinnumarkaðarins á ESB- og aðildarríkjavísu) til að leggja mat á áhættu.

Til að læra meira um vinnuverndaráhættumat í MSE, skaltu skoða þessa tengdu OSHwiki grein.

Við innleiðum framtíðarsýn okkar með því að:

  • Að leggja fram sannanir og þekkingu um núverandi, nýjar og tilvonandi áhættur varðandi áhrif þeirra á öryggi og heilsu og forvarnir, til að styðja við stefnumótun og rannsóknir.
  • Að stuðla að og auðvelda þróun tækja og úrræða til að styrkja tengslanet stofnunarinnar og samstarfsaðila til að bæta forvarnir gegn vinnuverndaráhættu á vinnustað.
  • Að skapa vitundarvakningu og tengslamyndunaraðgerðir til að gera stofnuninni og hagsmunaaðilum hennar kleift að efla jákvæða áhættuvarnamenningu í starfi.

Helsta starfsemi okkar

  • Herferðirnar Vinnuvernd er allra hagur — tveggja ára herferðirnar okkar til þess að auka vitund um vinnuverndarmál í Evrópu
  • Verkefnið um gagnvirka áhættumatstólið á Netinu (OiRA) — við bjóðum upp á áhættumatstól á Netinu fyrir smá- og meðalstór fyrirtæki til þess að leggja mat á og stjórna áhættum á vinnustöðum.
  • ESENER könnunin — þessi víðtæka könnun veitir yfirsýn yfir stjórnun öryggis- og heilbrigðisáhættna á evrópskum vinnustöðum
  • OSHwiki  — alfræðiorðabók á Netinu með réttum og áreiðanlegum upplýsingum um vinnuverndarmál
  • Framsýnisverkefni — við undirstrikum og rannsökum nýjar og aðsteðjandi vinnuverndaráhættur í gegnum sérstök framsýnisverkefni
  • Vinnuverndaryfirlit — við veitum yfirlit yfir sérstök vinnuverndarefni og bendum á forgangsmál
  • NAPÓ kvikmyndir  — röð stuttra, skemmtilegra, tallausra kvikmynda um mikilvæg atriði á sviði vinnuverndar

Í raun sögðust 17% starfsmanna í ESB árið 2015 vera útsettir fyrir kemískum vörum eða efnum í að minnsta kosti fjórðung af vinnutíma sínum, hlutfall sem er nánast óbreytt síðan árið 2000, og 15 % sögðust anda að sér reyk, gufum, dufti eða ryki í vinnunni.

Nokkur mjög hættuleg efni — eins og asbest eða fjölklórað bífenýl (PCBs) — eru nú bönnuð eða undir ströngu eftirliti. Hins vegar eru önnur skaðleg efni enn víða notuð og er löggjöf til staðar til þess að tryggja að áhættu í tengslum við þau sé stjórnað með viðeigandi hætti.

Hættur varðandi heilsu

Heilsufarsvandamál, sem geta komið upp vegna vinnu með hættuleg efni, eru allt frá mildri ertingu í augum og húð yfir í alvarleg áhrif eins og fæðingargalla og krabbamein. Áhrifin geta verið bráð eða langvarandi og sum efni geta haft uppsöfnuð áhrif. Nokkrar af algengustu hættunum eru:

Sum hættuleg efni valda öryggishættum, svo sem hættu á eldi, sprengingu eða köfnun. Þar að auki búa hættuleg efni venjulega yfir þó nokkrum af þessum eiginleikum.

Líffræðilegir áhrifavaldar

Bakteríur, veirur, sveppir og sníkjudýr finnast í mörgum geirum. Þau eru venjulega ósýnileg sem þýðir að fólk veltir jafnvel ekki fyrir sér áhættunni samfara þeim.

Starfsmenn í sumum greinum eru í sérstakri hættu fyrir því að verða útsettir fyrir skaðlegum líffræðilegum áhrifavöldum: heilbrigðisþjónustu, landbúnaði, dýralækningum, ræstingum og viðhaldi, skólp- og sorpvinnslu, garðyrkju og vinnu á rannsóknarstofum.

Frekari upplýsingar:

Aðsteðjandi áhættur

Ný tækni, vaxandi atvinnugeirar og breytingar á vinnuskipulagi geta leitt til aukinnar hættu á skaða af völdum líffræðilegra eða kemískra áhrifavalda. Í umhverfisgeiranum, til dæmis, getur nýstárleg tækni haft í för með sér áhættur sem lítill skilningur er á. Til þess að veita annað dæmi að þá verða sífellt fleiri starfsmenn fyrir útsetningu á hættulegum efnum í þjónustugreinum eins og umönnun á heimilum og úrgangsstjórnun, þar sem útsetningin er breytileg en vitneskjan um hætturnar er lítil. Það er mikilvægara en áður að atvinnurekendur og launþegar átti sig á hugsanlegum áhættum og grípi til fyrirbyggjandi ráðstafana.

Frekari upplýsingar um aðsteðjandi áhættur, græn störf og nanóefni.

Frekari upplýsingar í tengslum við aðsteðjandi áhættur:

Fyrirbyggjandi aðgerðir og meðhöndlun á hættulegum efnum

Til þess að verja starfsmenn gegn hættulegum efnum þá er fyrsta skrefið að framkvæma áhættumat. Síðan ætti að grípa til ráðstafana til þess að útrýma eða draga úr hættum eins og unnt er. Að lokum ætti að fylgjast reglulega með stöðunni og fara yfir áhrif þeirra ráðstafana sem gripið var til.

Aðildarríkin, sem og Vinnuverndarstofnun Evrópu, hafa búið til fjölda líkana til þess að hjálpa smáum og meðalstórum fyrirtækjum við að framkvæma áhættumat. E-tólið fyrir hættuleg efni veitir vinnuveitendum nauðsynlega aðstoð og ráðgjöf til að stjórna hættulegum efnum með skilvirkum hætti á vinnustaðnum. Gagnagrunnur um hagnýt tæki og leiðsögn inniheldur hagnýtar aðferðir fyrir vinnustaði, svo sem leiðsögn um áhættumat og hvernig eigi að skipta út eða útrýma notkun á hættulegum efnum, dæmisögur og margvísleg verkfæri.

Lesið meira á OSHWiki síðunni um áhættumatstól fyrir hættuleg efni. 

Atvinnurekendur þurfa einnig að hafa berskjaldaða hópatil hliðsjónar eins og starfsmenn sem eru ungir, þungaðir eða með barn á brjósti en samkvæmt lögum er þörf á sérstakri vernd fyrir þá. Einnig þarf að taka tillit til hópa starfsmanna, eins og farandverkamanna, óþjálfaðs eða reynslulítils starfsfólks, og verktaka, eins og ræstingafólks, og sérsníða forvarnir í samræmi við þeirra þarfir.

Stigveldi forvarna

Evrópulöggjöf um verndun starfsmanna kveður á um stigveldi ráðstafana sem atvinnurekendur þurfa að grípa til við að stjórna áhættum gagnvart starfsmönnum af völdum hættulegra efna.

  • Útrýming og staðgengd eru efst í stigveldi stjórnunarráðstafananna. Þar sem það er hægt ætti að útrýma notkun hættulegra efna með því að breyta ferlum eða vörum þar sem efnið er notað.
  • Ef útrýming er ekki möguleg ætti að skipta út hættulega efninu fyrir hættulaust eða hættuminna efni.
  • Ef ekki er hægt að útrýma eða skipta út efni eða ferli, þá er hægt að koma í veg fyrir eða draga úr váhrifum með tæknilegum eða skipulagsráðstöfunum. T.d. með því að stýra losun þar sem upptökin eru (lokað kerfi eða staðbundin útblástursloftræsting), eða með því að draga úr fjölda þeirra starfsmanna sem eru útsettir fyrir hættulegum efnum, og úr lengd og styrkleika útsetningarinnar.
  • Lögum samkvæmt er notkun á persónulegum hlífðarbúnaði síðasta úrræðið ef ekki er hægt að stjórna útsetningunni með viðeigandi hætti eftir öðrum leiðum.

Nánari upplýsingar:

Góð samskipti

Til þess að tryggja öryggi starfsmanna ættu þeir að fá upplýsingar um:

  • Niðurstöður áhættumats atvinnurekandans
  • Hætturnar sem þeir standa frammi fyrir og hvernig þær kunni að hafa áhrif á þá
  • Hvað þeir þurfi að gera til þess að halda sér og öðrum öruggum
  • Hvernig eigi að kanna og koma auga á þegar hlutirnir eru ekki í lagi
  • Hvern eigi að láta vita af vandamálum
  • Niðurstöður váhrifaeftirlits eða heilbrigðiseftirlits
  • Nauðsynlegar fyrirbyggjandi ráðstafanir við viðhaldsvinnu
  • Skyndihjálp og neyðarferlar

Lesa E-staðreynd Vinnuverndarstofnunar Evrópu um hættuleg efni og árangursrík samskipti á vinnustöðum

Útsetningsmörk á vinnustöðum

Fyrir fjölda hættulegra efna, hafa ESB og aðildarríkin sett Atvinnutengd váhrifamörk)sem þarf að virða.

Bindandi (sem þýðir að þau þarf að virða) og leiðbeinandi (leiðbeinir um hverju ætti að áorka) viðmiðunarmörk fyrir váhrif í starfi fyrir hættuleg efni eru líka sett fram í evrópskum vinnuverndartilskipunum. Atvinnutengd váhrifamörk fyrir hættuleg efni eru mikilvægar upplýsingar fyrir áhættumat og stjórnun. Flest aðildarríki ESB setja sín eigin viðmiðunarmörk fyrir váhrif í starfi, sem ná yfirleitt yfir fleiri efni en ESB tilskipanirnar. Engu að síður, hafa viðmiðunarmörk fyrir váhrif í starfi aðeins verið sett fyrir takmarkaðan fjölda efna sem eru notuð um þessar mundir á vinnustöðum.

Krabbameinsvaldandi efni

Það eru mörg hættuleg efni flokkuð sem krabbameinsvaldandi efni sem starfsmenn kunna að vera útsettir fyrir. Sum myndast með vinnuaðferðunum sjálfum.

Það eru sérstök lagaákvæði í Evrópusambandinu til að vernda starfsfólk. Samkvæmt Tilskipuninni um krabbameinsvaldandi efni, verða atvinnurekendur að meta og forðast eða lágmarka váhrif frá krabbameinsvaldandi efnum eða stökkbreytivöldum. Auk þess að notast við stigveldi forvarnaráðstafana:

  • Skulu þeir skipta út krabbameinsvaldandi efnum eða stökkbreytivöldum að svo miklu leyti sem það er tæknilega mögulegt með efni, efnablöndu eða aðferð sem er ekki eða ekki eins hættuleg.
  • Þar sem þetta er ekki mögulegt, skal tryggja að það sé, að svo miklu leyti sem það er tæknilega mögulegt, framleitt og notað í lokuðu kerfi.
  • Þar sem lokað kerfi er ekki tæknilega mögulegt, skulu atvinnurekendur draga úr útsetningu eins mikið og er tæknilega mögulegt, takmarka magnið og halda fjölda starfsmanna sem verða útsettir fyrir efnum eins litlum og mögulegt er.

Þeir verða einnig að:

  • Afmarka hættusvæði og nota fullnægjandi viðvörunar- og öryggisskilti
  • Hanna vinnuaðferðir þannig að efnalosun sé haldið í lágmarki
  • Fjarlægja krabbameinsvaldandi efni eða stökkbreytivalda, en virða umhverfið
  • Nota viðeigandi mælingaraðferðir (sérstaklega til að greina snemma óvanalega útsetningu vegna ófyrirsjáanlegs atburðar eða slyss)
  • Nota einstaklingsbundnar verndaraðferðir ef heildarverndaraðferðir duga ekki
  • Gera hreinsunarráðstafanir (hreinsa reglulega)
  • Setja upp neyðaráætlanir
  • Nota loku ílát með skýrum og sýnilegum merkingum til að geyma, meðhöndla, flytja og farga efnum.

Þeir verða einnig að vera með sérstakar upplýsingakröfur fyrir starfsmenn og yfirvöld og þurfa að halda skrár yfir starfsmenn sem verða fyrir útsetningu, mælingar og niðurstöður úr heilsufarseftirliti.

OSHwiki greinar: Asbest, Kristallað kísl sem hægt er að anda að sér

Skoða vefsíðuhlutann um vinnutengt krabbamein

Frekari upplýsingar um Vegvísi um krabbameinsvaldandi efni

Lagalegt öryggi

Allir sem koma nálægt stjórnun hættulegra efna á vinnustöðum þurfa að vera meðvitaðir um lagarammann sem nær yfir hættuleg efni í ESB.

Vinnuverndarlöggjöf miðar að því að vernda starfsmenn fyrir öryggis- og heilsufarsáhættum og fyrir hættulegum efnum á vinnustöðum (t.d. tilskipun um kemíska áhrifavalda, tilskipun um krabbameinsvaldandi efni og tilskipanir um hámarksgildi). Hún krefst þess að atvinnurekendur framkvæmi áhættumat á vinnustað varðandi allar öryggis- og heilsufarsáhættur, þar með talið áhættur vegna hættulegra efna, og að þeir grípi til viðeigandi verndar- og forvarnaaðgerða. Finna samantektir um viðkomandi ESB löggjöf.

Markmiðið er að tryggja að ráðist sé á hætturnar þar sem þær byrja og að heildarráðstafanir — þ.e. ráðstafanir sem vernda hóp starfsfólks á kerfisbundin hátt — séu í forgangi.

REACH löggjöfin og CLP reglugerðin krefjast þess að efnaframleiðendur og -birgjar tryggi að staðlaðar öryggismerkingar, hættumyndtákn og öryggisgagnablöð séu til staðar. Þau gefa upplýsingar um eiginleika efnanna og hætturnar sem tengjast þeim, og leiðbeiningar um geymslu, meðferð og forvarnir. Aðrar reglugerðir og leiðbeiningar ná yfir sérstakar hliðar svo sem framleiðslu, afhendingu, flutning og merkingu hættulegra efna, og þær eiga oft við um vinnustaðinn líka.

Reglugerðir ESB um öryggi og heilbrigði á vinnustöðum eru innleiddar í landslög en aðildarríkin mega einnig bæta við öðrum eða strangari ákvæðum til verndar starfsfólki. Því er mikilvægt að fyrirtæki kanni viðeigandi löggjöf í viðkomandi landi.

Fræðast meira um: