Árið 2014, hleypti EU-OSHA af stað 3ja ára verkefni til að stuðla að því að bæta niðurstöður varðandi vinnuvernd hjá öllum örfyrirtækjum og litlum fyrirtækjum - MSE - um alla Evrópu.
Herferðirnar Vinnuvernd er allra hagur, sem standa yfir í tvö ár, eru haldnar í yfir 30 Evrópulöndum og eru viðurkenndar sem stærstu vinnuverndarherferðir sinnar gerðar í heiminum. Helstu skilaboðin eru sú að árangursrík stjórnun á vinnuvernd er góð fyrir starfsmenn, fyrirtæki og samfélagið í heild.
Fyrirtækjakönnun Evrópu um nýjar og aðsteðjandi áhættur (ESENER) fjallar um þörf atvinnurekenda á stuðningi og sérfræðiþekkingu og greinir þætti sem geta hvatt til eða komið í veg fyrir áhættuforvarnir. Könnunin safnaði svörum frá næstum því 50.000 fyrirtækjum og náði til bæði einkarekinna og opinberra fyrirtækja í yfir 30 löndum.