Alþjóðlega kvikmyndahátíðin DocLisboa sem haldin var á þessu ári milli 21. og 30. október í Lissabon, Portúgal, hóf að hýsa HWFA árið 2020. Hátíðin er nú haldin í 19. sinn og fagnar hinum mikla fjölbreytileika og lífskrafti heimildamyndagerðarinnar og stuðlar að nýjum hugsunarhætti, með því að skoða heiminn og miðla þekkingu. Hátíðin gefur rými fyrir umræður um mikilvæg málefni eins og vinnuskilyrði, mannréttindi og samfélagsmál. DocLisboa er ein af leiðandi heimildamyndahátíðum heims og sú eina sem er algjörlega tileinkuð heimildarmyndum í Portúgal.

Kvikmyndaverðlaun herferðarinnar Vinnuvernd er allra hagur (HWFA) voru stofnuð af EU-OSHA árið 2009 til að verðlauna bestu heimildarmyndina um málefni sem varða vinnu. Leikstjóri vinningsmyndarinnar fær 5.000 evrur í verðlaunafé. Myndin er textuð á mörg ESB tungumál og sýnd í gegnum net EU-OSHA og opinbera samstarfsaðila um alla Evrópu. HWFA er kynnt sem flokkur innan Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar DocLisboa.

Kvikmyndaverðlaun herferðarinnar Vinnuvernd er allra hagur árið 2021

YOON

Pedro Figueiredo Neto, Ricardo Falcão

Portúgal / 2021 / 84'

YOONHeimildarmyndin YOON fylgist með senegalska farandverkamanninum Mbaye á ferð hans í gömlum Peugeot 50 milli Portúgals og Senegals, en hann á heimili í báðum löndunum. Þetta er hættulegt og einmanalegt ferðalag suður á bóginn, uppfullt af (mis)góðum uppákomum og alls kyns áskorunum og málamiðlunum, sem leiða söguhetjuna í gegnum flókið net samskipta og um grá svæði tilverunnar.

 

Sjá sýnishorn úr myndinni

 

 

Tilnefningar

  • From the Wild Sea, Robin Petré, Danmörk / 2021 / 78'
  • From the 84 Days, Philipp Hartmann, Þýskaland, Bolivía / 2021 / 109'
  • Factory to the Workers, Srđan Kovačević, Króatía / 2021 / 106'
  • Mother Lode, Matteo Tortone, Frakkland, Ítalía, Sviss / 2021 / 86'
  • Les Mots de la Fin, Gaëlle Hardy, Agnès Lejeune, Belgía / 2021 / 72'
  • Sol de Campinas, Jessica Sarah Rinland, Brasilía / 2021 / 26'
  • Oh Dear Sarah, Patricia Franquesa, Spánn, Serbía, Noregur / 2021 / 60'
  • In Spite of Ourselves, Olatz Ovejero Alfonso, Clara López, Aurora Baez, Sebastián Ramírez, Spánn / 2020 / 21'