Atvinnulækningar og eftirfylgni: niðurstöður úr könnun meðal sérfræðinga í Evrópu

Image
Doctor measuring blood pressure

© Orathai - stock.adobe.com

Þegar vinnustaðir laga sig að stórum áskorunum, svo sem hækkandi meðalaldri starfsfólks, kynnir nýtt EU-OSHA umræðublað sjónarmið sérfræðinga í atvinnulækningum um hlutverk þeirra við að stuðla að því að vinnuverndarreglum sé fylgt.

Þessi útgáfa er hluti af rannsóknaráætlun okkar um að stuðla að reglufylgni og veitir yfirlit yfir starfshætti, áskoranir og ávinning af atvinnulækningum í Evrópu. Hún byggist á nýlegri könnun sem deild atvinnulækninga hjá Evrópusambandi læknisfræðilegra sérfræðinga (UEMS-OM) framkvæmdi. Í greininni kemur einnig fram að helsta ástæða þess að heilbrigðisþjónusta er veitt á vinnustöðum sé lagaleg skylda til að bjóða upp á slíkan stuðning.