Nú komin á netið: vefsíða Herferðarinnar um heilbrigða vinnustaði – þinn helsti upplýsingavettvangur um geðheilbrigði á vinnustað

Image
Healthy Workplaces Campaign website

© EU-OSHA

Í aðdraganda þess að áhersluátak EU-OSHA um heilbrigða vinnustaði 2026–28, „Saman um geðheilbrigði á vinnustað“, hefst 13. október er vefsíða átaksins nú aðgengileg í heild sinni á öllum tungumálum ESB.

Vefsíðan verður miðlægur upplýsingavettvangur fyrir stofnanir, atvinnurekendur og aðra aðila á sviði vinnuverndar og veitir þeim efni og stuðning til að fyrirbyggja sálfélagslega áhættu á vinnustöðum og stuðla að góðri geðheilsu á vinnustað.

Með örfáum smellum geta lesendur kynnt sér herferðina og nálgast fjölbreytt efni, svo sem skýrslur, stefnumiðuð yfirlit, hagnýtar leiðbeiningar og hjálpartæki sem gera þeim kleift að taka virkan þátt í að stuðla að velferð starfsfólks.

Góð geðheilsa á vinnustað er sameiginleg ábyrgð og allir hafa þar hlutverki að gegna. Samstarfsaðilar herferðarinnar geta notað vefsíðuna til að kynna viðburði sína og verkefni, auk þess að nýta stafrænt efni, svo sem efni okkar fyrir samfélagsmiðla, til að auka sýnileika herferðarinnar um alla Evrópu.

Fylgstu með nýjustu upplýsingum um herferðina og skráðu þig á póstlista fréttabréfsins Vinnuvernd er allra hagur.