Hápunktar
Aftur að hápunktumLangvinnir stoðkerfissjúkdómar: hvernig finnum við réttu lausnirnar til að halda áfram á vinnumarkaði
© slon.pics - www.freepik.es
Eftir því sem aldur vinnuafls í Evrópu eykst aukast líkurnar á því að launþegar þjáist af stoðkerfissjúkdómum. En — með réttum stuðningi — geta einstaklingar með langvinna sjúkdóma haldið áfram á vinnumarkaði.
Ítarleg skýrsla fjallar um hvernig það sé hægt með dæmum um einfalda aðlögun á vinnustöðum og góðum ráðum um skilvirkan undirbúning á endurkomu til starfa og undirstrikar mikilvæg hlutverk snemmbúinna íhlutana og samskipta á milli launþega og vinnuveitenda. Meðfylgjandi greining á átta tilvikarannsóknum sýnir hvernig sveigjanleiki, nýsköpun og það að prófa sig áfram getur leitt til lausna sem henta öllum.
Nýju skýrsluna og aðrar leiðbeiningar um störf með langvinna stoðkerfissjúkdóma er nú að finna á sérstakri síðu vefsíðu herferðarinnar Hæfilegt álag - Heilbrigt stoðkerfi.
Lesa nýju skýrsluna okkar og samantektina unnið með langvinna stoðkerfissjúkdóma
Sækja greiningu okkar á tilvikarannsóknum og samantekt á raunverulegum dæmum um stjórnun langvinna stoðkerfissjúkdóma
Skoða vefhlutann forgangssviðið langvinnir sjúkdómar