Hin skyndilega aukning á fjarvinnu frá heimilum í COVID-19 heimsfaraldrinum hefur aukið áhættu launþega á stoðkerfissjúkdómum og andlegum vandamálum.

Ný skýrsla skoðar þessa áhættu, ávinninginn og vandamálin af fjarvinnu og reglur ESB til að standa vörð um launþega. Í henni má finna dæmi úr mismunandi atvinnugeirum í mismunandi löndum á góðum starfsvenjum á sviði fjarvinnu, sem mynduðust í heimsfaraldrinum, auk þess sem þar er undirstrikað mikilvægi áhættumats.

Vinnutengdir stoðkerfissjúkdómar geta haft áhrif á hvern sem er, en hægt er að koma í veg fyrir og meðhöndla þá. Lykillinn er að þekkja staðreyndir og framkvæma viðeigandi áhættumat. Þrjár nýjar kynningar skila öllum þeim upplýsingum sem þú þarft – skýrt og skorinort.

Hreyfðu þig í vinnunni

Að vera virkari í vinnunni getur hjálpað til við að koma í veg fyrir heilsufarsvandamál eins og stoðkerfissjúkdóma og hjartasjúkdóma sem tengjast kyrrsetu, og eins bætir það árangur í starfi.

Þessi upplýsingamynd inniheldur einfaldar ábendingar fyrir vinnuveitendur og starfsmenn, svo sem að taka oft örpásur, ganga í símtölum, teygja hlé á fundum og „sitja á dýnamískan hátt“.

Openin: en
Sækjain: en

07/06/2021

Sækjain: en | cs | nl | el | es | fr | lt | mt | no | sl | fi | sv | tr |

Ertu að leita að leiðum til að auka hreyfingu í vinnunni og minnka langan stöðu- og kyrrsetutíma? Sérstakur hluti af vefsíðunni fyrir herferðina Léttum byrðina er með krækjur á öll úrræði sem þú þarft.

Í OSHwiki greinum koma fram helstu staðreyndir og leiðbeiningar um stoðkerfissjúkdóma (e. Musculoskeletal Disorders - MSD) og afleiðingar af langvarandi stöðu og kyrrsetum. Þar einnig skoðað hverjir eru í mestri hættu og hvers vegna hönnun vinnustaðar er mikilvæg.

Við þurfum að sitja minna og hreyfa okkur meira í vinnunni. Nýja upplýsingablaðið okkar útskýrir hvernig hreyfing getur orðið hluti af hvaða starfi sem er.

Að sitja eða standa lengi í vinnunni er allt of algengt en það er slæmt fyrir heilsu starfsmanna – hvað geta atvinnurekendur gert til að draga úr áhættunni? Finndu allar nýjustu leiðbeiningarnar, verkfærin og ráðin til að draga úr vandamálum vegna kyrrsetu á vefsíðu okkar „Hæfilegt álag - Heilbrigt stoðkerfi“.

Líkamar okkar þurfa að hreyfa sig til að virka vel: það er mikilvægt að forðast kyrrstöðu til að koma í veg fyrir stoðkerfissjúkdóma og önnur heilsufarsleg vandamál. Langvarandi seta og staða við vinnu er í brennidepli í tveimur nýjum skýrslum um heilsufarsáhættu vegna kyrrsetustarfa.

Í skýrslunum er skoðað hvaða starfsmenn eru næmastir fyrir þessum sjúkdómum, hverjar eru leiðbeiningarnar um að sitja og standa í vinnunni og hvernig vinnuveitendur geta komið í veg fyrir áhættu og hjálpað starfsmönnum að auka líkamsstarfsemi sína.