Hin skyndilega aukning á fjarvinnu frá heimilum í COVID-19 heimsfaraldrinum hefur aukið áhættu launþega á stoðkerfissjúkdómum og andlegum vandamálum.
Ný skýrsla skoðar þessa áhættu, ávinninginn og vandamálin af fjarvinnu og reglur ESB til að standa vörð um launþega. Í henni má finna dæmi úr mismunandi atvinnugeirum í mismunandi löndum á góðum starfsvenjum á sviði fjarvinnu, sem mynduðust í heimsfaraldrinum, auk þess sem þar er undirstrikað mikilvægi áhættumats.
Vinnutengdir stoðkerfissjúkdómar geta haft áhrif á hvern sem er, en hægt er að koma í veg fyrir og meðhöndla þá. Lykillinn er að þekkja staðreyndir og framkvæma viðeigandi áhættumat. Þrjár nýjar kynningar skila öllum þeim upplýsingum sem þú þarft – skýrt og skorinort.
Hreyfðu þig í vinnunni
Að vera virkari í vinnunni getur hjálpað til við að koma í veg fyrir heilsufarsvandamál eins og stoðkerfissjúkdóma og hjartasjúkdóma sem tengjast kyrrsetu, og eins bætir það árangur í starfi.
Þessi upplýsingamynd inniheldur einfaldar ábendingar fyrir vinnuveitendur og starfsmenn, svo sem að taka oft örpásur, ganga í símtölum, teygja hlé á fundum og „sitja á dýnamískan hátt“.
Ertu að leita að leiðum til að auka hreyfingu í vinnunni og minnka langan stöðu- og kyrrsetutíma? Sérstakur hluti af vefsíðunni fyrir herferðina Léttum byrðina er með krækjur á öll úrræði sem þú þarft.
Í OSHwiki greinum koma fram helstu staðreyndir og leiðbeiningar um stoðkerfissjúkdóma (e. Musculoskeletal Disorders - MSD) og afleiðingar af langvarandi stöðu og kyrrsetum. Þar einnig skoðað hverjir eru í mestri hættu og hvers vegna hönnun vinnustaðar er mikilvæg.