Vinnutengdir stoðkerfissjúkdómar: það þarf að vernda alla

Image

Vissir þú að starfsmenn sem verða fyrir mismunun - þar á meðal konur, farandverkamenn og LGBTI-starfsmenn - eru einnig í meiri hættu á að fá vinnutengda stoðkerfissjúkdóma (e. Musculoskeletal Disorders - MSD)? Forgangssvæði fyrir fjölbreytileika starfsmanna á vefsíðu herferðarinnar Léttu byrðarnar býður upp á þau úrræði sem þarf til að tryggja að allir starfsmenn séu verndaðir jafnt.

Tilviksrannsóknir, skýrslur, handhæg kynning og upplýsingablað - og margt fleira - varpa ljósi á sérstakar þarfir þessara starfsmanna og veita leiðbeiningar um hvernig taka megi tillit til þarfa þessara hópa þegar áhættur tengdar stoðkerfissjúkdómum eru metnar og forvarnaraðgerðir eru mótaðar.  

Skoða forgangssvæði fyrir fjölbreytileika starfsmanna á heimasíðu herferðarinnar núna

Frekari upplýsingar um rannsóknir okkar á vinnutengdum stoðkerfisvandamálum