Stöndum vörð um öryggi og heilbrigði fólks í fjarvinnu í COVID-19 heimsfaraldrinum

Image

© Vector by freepik - www.freepik.es

Hin skyndilega aukning á fjarvinnu frá heimilum í COVID-19 heimsfaraldrinum hefur aukið áhættu launþega á stoðkerfissjúkdómum og andlegum vandamálum.

Ný skýrsla skoðar þessa áhættu, ávinninginn og vandamálin af fjarvinnu og reglur ESB til að standa vörð um launþega. Í henni má finna dæmi úr mismunandi atvinnugeirum í mismunandi löndum á góðum starfsvenjum á sviði fjarvinnu, sem mynduðust í heimsfaraldrinum, auk þess sem þar er undirstrikað mikilvægi áhættumats.

Það sem meira er að þá veitir ný grein á OSHwiki — sem er uppfull af upplýsingum um fjarvinnu og tengda líkamlega og sálfélagslega áhættu — leiðbeiningar, sem auðvelt er að fylgja, til að vernda launþega.

Lesa skýrsluna Fjarvinna í COVID-19 heimsfaraldrinum: áhætta og forvarnir

Skoða nýju greinina á OSHwiki um stoðkerfissjúkdóma

Skoða þessa aðra grein á OSHwiki með hagnýtum ráðum um hvernig gera megi fjarvinnu eins heilsusamlega, örugga og skilvirka og hægt er

Sækja kynningar af netmálstofunni okkar um fjarvinnu í heimsfaraldri: yfirlit yfir áhættu og forvarnarstefnur í Evrópu