Landbúnaður og skógrækt: atvinnugrein með alvarlegar vinnuverndaráskoranir
31/03/2021
Landbúnaður og skógrækt er ein af hættulegustu atvinnugreinum í Evrópu, þar sem tíðni slysa er varða ökutæki, vélar og meðhöndlun búfjár er mjög há. Váhrif af efnafræðilegum skordýraeitrum, hristing, hávaða og streitu hafa einnig í för með sér hættur við öryggi og heilsu.
Eins og nýja stefnuskráin okkar sýnir, eru lausnirnar ekki einfaldar. Ný tækni og stafræn vinnubrögð munu leiða til nokkurra umbóta varðandi vinnuvernd, en geta einnig haft í för með sér nýjar hættur. Til að takast á við áskoranir Evrópsku vinnuverndarstofnunarinnar í öryggismálum er, í stuttu máli, mælt með því í að aðlaga áhættumat að breyttum aðstæðum bænda og skógræktarmanna sem t.d. orsakast af áhrifum loftslagsbreytinga eða þróun á vinnumarkaði og taka á brestum á tilkynningarskyldu um málefni vinnuverndar í greininni.