Spánn: Skipta út hættulegum kemískum efnum og tryggja öruggar, heilsusamlegar og sjálfbærar vinnuaðstæður í hárgreiðslugeiranum

Keywords:
Verðlaun fyrir góða starfshætti 2018-2019
Fyrirtæki sem fékk verðlaun 

Starfsfólk í hárgreiðslu- og snyrtigeiranum er oft útsett fyrir hættulegum efnum, til dæmis hárlitum, bleikiefnum og sjampóum.

Peluquería Elvira, lítil hárgreiðslustofa á Spáni, hefur skipt út vörum sem innihalda skaðleg kemísk efni fyrir vörur sem byggja á plöntum og komið upp aðskildu blöndunarsvæði fyrir hættulegar blöndur, og betri loftræstingu, sem og þjálfunaráætlun, sem hefur leitt til þess að mikið hefur dregið úr ertingu í húð, augum og hálsi, þreytu og hausverk hjá starfsfólki. Þessar aðgerðir eru hluti af heildrænni nálgun sem nær einnig yfir tilhögun á þáttum tengdum vinnuvistfræði og vinnutíma.

Stjórnendur hafa einsett sér að bæta vinnuumhverfið á hárgreiðslustofunni með virkri þátttöku starfsfólks, og þeir deila sínum góðu starfsháttum með öðrum fyrirtækjum.

Sækja in: en | es | is | lt |