Árstíðabundnir starfsmenn: Þekkið rétt ykkar og verið öruggir og heilbrigðir í vinnunni
16/09/2021
Árstíðabundnir starfsmenn í löndum ESB eiga rétt á því að vera öruggir og heilbrigðir í vinnunni. En þeir þurfa oft að þola ótrygg líf- og vinnuskilyrði sem hafa versnað vegna COVID-19 faraldursins. Átakið Réttindi fyrir allar árstíðir í landbúnaðargeiranum, sem Vinnumálastofnun Evrópu hleypti af stokkunum, miðar að því að vekja athygli á réttindum árstíðabundina starfsmanna og þeirrar þjónustu sem þeim stendur til boða.
Þessi herferðabæklingur veitir árstíðabundnum starfsmönnum auðskiljanlegar leiðbeiningar um réttindi sín, áhættuna sem þeir kunna að horfast í augu við og ábyrgð vinnuveitenda þeirra. Bæklingurinn undirstrikar einnig hvar starfsmenn geta fengið aðstoð ef þörf krefur og inniheldur tengla á frekari gagnlegar upplýsingar.