Að vinna með langvinna stoðkerfissjúkdóma
05/03/2021
Tegund:
Upplýsingablöð
4 blaðsíður
Þetta upplýsingablað veitir einfalda útskýringu á langvinnum gigtar- og stoðkerfisröskunum og undirstrikar mikilvægi þess að tryggja að fólk með slíka sjúkdóma fái stuðning til að halda áfram í vinnu eða snúa aftur til vinnu með aðlögun vinnustaða — einkum þar sem gigtar- og stoðkerfissjúkdómar færast í aukana eftir því sem aldur vinnuafls eykst.
Það lýsir því einnig hvernig vinnuveitendur geti sigrast á þeim vandamálum sem gigtar- og stoðkerfissjúkdómar hafa í för með sér og leggur áherslu á forvarnir, skilvirkt áhættumat, opið samtal og snemmbúnar íhlutanir.
Það veitir hagnýt dæmi um einfaldar aðlaganir á vinnustöðum en sumar þeirra geta komið vinnuaflinu í heild til góða.