Pólland — öruggari og heilbrigðari vinna á öllum aldri: reynsla pólskrar saumaverksmiðju (Dartex)
09/03/2016
DARTEX er lítil saumaverksmiðja með 14 kvenkyns starfsmönnum sem vinna eina vakt á dag, fimm daga vikunnar. Endurtekningasöm verkefni sem unnin eru sitjandi auka hættuna á vandamálum í stoðkerfinu. Öryggis- og heilbrigðismál höfðu áhrif á framleiðni, fjarvistir vegna veikinda og ánægju viðskiptavina. Auk lögbundinna læknisskoðana leiddi mat á vinnuaðstöðu einstakra starfsmanna til endurbóta á skipulagi, uppsetningu og búnaði, sem dró úr álagi vegna endurtekinna verka. Utanaðkomandi ráðgjafar gáfu ráðleggingar um breytingar á lýsingu og vélum til að minnka álag á augu og útsetningu fyrir hávaða og titringi. Betra vinnuskipulag leiddi til þess að engil slys urðu á fólki og vandamálum tengdum stoðkerfi fækkaði jafnframt sem aukin nákvæmni leiddi til 70% fækkunar á kvörtunum viðskiptavina. Mánaðarlegar skoðanir tryggja að áhersla verður áfram lögð á vinnuvernd. Á meðal þátta sem stuðluðu að árangrinum voru aukin vitund um vinnuvernd, skuldbinding vinnuveitandans, þátttaka starfsmanna og aðkoma utanaðkomandi sérfræðinga. Á meðal áskorana í upphafi var að sannfæra starfsmenn um ávinning breytinganna en ekki leið á löngu þar til sigrast var á áskorunum. Þrátt fyrir að þessar lausnir séu sérsniðnar að tilteknum iðnaði er nálgunin sem byggir á samvinnu og praktískum lausnum sem hafa áþreifanlegan viðskiptalegan ávinning í för með sér yfirfæranleg á mörg önnur svið.