Noregur — „Life Phase“ stefna flugvallarins í Osló
09/03/2016
OSL á og rekur aðalflugvöll Noregs. Hjá OSL starfa um 500 manns, meðalaldurinn 46 ára og yfir 50% er í vaktavinnu. Fyrirtækið setti saman stefnuna „Life Phase“ til að draga úr veikindaleyfum og skertri starfsgetu og jafnframt halda hæfu starfsfólki lengur. Vinnuverndarverkefni fyrir eldra starfsfólk var sett saman sem inniheldur heilsueflingu, hæfnisþjálfun, sveigjanlega vinnutíma og þróun verkefnis í mannauðsstjórnun sem leggur áherslu á öldrun og öldrunarvandamál. Reglubundið heilbrigðiseftirlit, heilsunámskeið og starfsskipulagning var sett á boðstólinn fyrir starfsfólk yfir fimmtugu. Boðið var upp á sveigjanlegja vinnutímar, fleiri frítíma og flutning eða endurmenntun. Viðburðir og námskeið í heilsueflingu voru sett saman með áherslu á næringu, líkamlega virkni, reykingar og áfengisdrykkju. Stjórnin hlaut fræðslu í tengslum við eldra starfsfólk í samstarfi við háskólann í Stavanger. Meðalaldur starfsloka hjá OSL hefur aukist um þrjú ár (sex mánuðum á undan áætlun) og veikindaleyfum og fjöldi starfsmanna með skerta starfsgetu hefur minnkað. Niðurstöður sýndu að 90% starfsfólks var ánægt í starfi og OSL hlaut viðurkenningu fyrir fyrir stefnumörkun í tengslum við eldra starfsfólk. Af árangursþáttum má nefna staðfestu stjórnar, samræmingu hagsmunaaðila, utanaðkomandi stuðning og fjölbreytileika í aðferðum. Helstu þætti má nota hjá hvaða fyrirtæki sem er.