Finnland — aldursstjórnun hjá Saarioinen Ltd

Lykilorð:

Saarionen, finnskur framleiðandi/dreifingaraðili, sá auknar fjarvistir vegna veikinda og snemmbært hvarf frá vinnu vegna stoðkerfisvandamála. Árið 2003 setti fyrirtækið af stað aldursstjórnunaráætlun sem átti að minnka kostnað í tengslum við þetta vandamál. Til viðbótar við áætlunina var áætlunargerð um framgang í starfi fyrir starfsmenn eldri en 50 ára, í samræmi við samning fyrir matvælaiðnaðinn frá árinu 2010. Starfsmenn í verkamannastörfum eldri en 55 ára sem hafa starfsað í fimm ár eða lengur geta sótt um stöðu „eldri starfsmanns“, sem gefur rétt á einstaklingsmiðaðri áætlun með aðlögun á vinnu, endurmenntun og áætlunargerð fyrir framvindu í starfi. Á meðal annarra kjara eru tryggingar á launastigi, minnkun vaktavinnu/vinnuvíxlunar, leyfi fyrir eldri starfsmenn/tímabundið leyfi og greiðsla á hluta af lækniskostnaði. Endurgjöf sýnir að velferð starfsmanna er meiri og að eftirlaunaaldur hefur hækkað um þrjú ár. Fyrirtækið íhugar að taka áætlunina upp fyrir starfsmenn í skrifstofustörfum. Á meðal árangursríkra þátta eru löggjöf sem styður við áætlunina og þátttaka allra hagsmunaaðila, en áskoranir eru í mótun áætlunargerðar fyrir framgang í starfi fyrir eldri starfsmenn. Áætlunin getur hentað fyrirtækjum og opinberum stofnunum, sérstaklega þættir er snúa að þróun á starfsferli og kannanir á starfsánægju.

Sækja in: en