Finnland — aldursstjórnun hjá Berner Ltd
09/03/2016
Berner Ltd er reyndur framleiðandi/heildsali sem er þekktur fyrir starfsmannamiðaða nálgun. Þar sem meðalaldur starfsmanna er 44 ár og 21% þeirra er eldri en 55 ára kom Berner á áætlun um eldri starfsmenn árið 2010. Áætlunin var þróuð af stýrihópi innan fyrirtækisins í samstarfi við Ilmarinen Mutual Pension Insurance. Áætlunin felur í sér vel heppnaða skipulagningu, fræðslu og þekkingarmiðjun, endurgjöf til starfsmanna og samskipti. Aðlögun á vinnu, læknisathuganir og leyfi fyrir eldri starfsmenn stuðla að því að halda eldri starfsmönnum hjá fyrirtækinu og starfsmenn á eftirlaunum geta veitt þjálfun eða gengið í afleysingar eftir þörfum. Áætlunin hefur heppnast vel og leitt til færri veikindadaga og að nánast engir starfsmann hafa hætt vegna vangetu, eftirlaunaaldurs yfir meðaltali í landinu og viðurkenningar innanlands. Reynslan af áætluninni er nú nýtt í þróun áætlunar fyrir unga starfsmenn. Á meðal árangursþátta eru samráð við starfsmenn, skipulagning starfsferils og fjölbreytileiki aðgerðanna. Áætlunin getur hentað stórum einkareknum fyrirtækjum eða opinberum stofnunum. Minni fyrirtæki gætu tekið upp hluta aðgerðanna.