Árangursþættir: þróun og kynning á frönskum OiRA-verkfærum

Lykilorð:

Áhættumat getur verið sérstaklega flókið fyrir ör- og smáfyrirtæki því þau skortir fjármagn og þekkingu til að sinna vinnuvernd. Af þeirri ástæðu kynnti Vinnuverndarstofnun Evrópu til sögunnar OiRA (gagnvirkt áhættumat á netinu) en það er aðlögunarhæfur verkvangur sem auðveldar gerð áhættumatsverkfæra.  

Þessi tilvikarannsókn skoðar hvernig Frakkland hefur notað OiRA-verkfæri til að stuðla að áhættumati hjá ör- og smáfyrirtækjum í margvíslegum atvinnugeirum. Samstarf vinnumálaráðuneytisins, almannatrygginga og aðila vinnumarkaðarins hefur leitt til þróunar og aukinnar notkunar á áhættumatsverkfærum fyrir ör- og smáfyrirtæki.

Tilvikarannsókninni lýkur með greiningu á árangursþáttum og hindrunum sem enn þarf að sigrast á. 

Sækja in: en | fr | sk |