Tékkland — verkefnið „Health Ahead“ hjá GE Money Bank („GE Pro zdraví“)

Lykilorð:

General Electric (GE) Money Bank a.s. fór af stað með verkefnið „GE Pro zdraví“ í mars 2010, í samræmi við alþjóðlegu heilsuáætlun GE. „Health Ahead“ er vottunarstaðall GE sem metur vinnustaði samkvæmt sérstöku starfsheilsukerfi sem nær lengra en reglubundna vinnuverndin gerir kröfu um. Verkefnið er starfrækt yfir allt árið á vinnutíma og er ætlað starfsfólki á öllum aldri. Boðið er upp á vinnustofur, umræður og heilbrigðisskoðanir auk sérstaka starfsendurhæfingu í kjölfar veikindaleyfis. Tvö útibú hlutu vottunina „Health Ahead“ vegna góðs árangurs, bæði fyrir aðgerðir sem voru fyrirfram skilgreindar af fyrirtækinu og aðgerðir sem framkvæmdar voru af eigin frumkvæði. Innra mat á 48 aðgerðum sem framkvæmdar voru á fyrstu tveimur árunum leiddi í ljós aukna heilsuvitund, aukna líkamlega virkni og minni streitu. Á meðal árangursþátta mætti nefna skýrar viðmiðunarreglur fyrirtækisins, samræmd samskipti við starfsfólk og samnýting góðra starfsvenja á milli starfsstöðva. Samræmi er tryggt með reglubundnum vottunum. Þetta kerfi má auðveldlega nota annars staðar þar sem hægt að er að laga það að uppsetningu viðkomandi fyrirtækis.

Sækja in: en