Búlgaría — heilsusamlegri og öruggari aðstæður fyrir alla starfsmenn

Lykilorð:

Verkefninu „Step Change“ hjá Zlatna Panega Cement AD var hrint af stað af móðurfyrirtækinu TITAN Group. Framkvæmdastjórn Zlatna Panega, vinnuverndarsvið fyrirtækisins, fulltrúar starfsmanna og ráðgjafafyrirtækið DuPont sáu um framkvæmd verkefnisins. „Step Change“ samanstóð af almennum vinnuverndarúrræðum, svo sem reglulegu áhættumati, stofnun heilbrigðisnefndar og veitingu fyrirbyggjandi læknisaðstoðar til allra starfsmanna. Á meðal sérstakra úrræða fyrir eldri starfsmenn er mat á vinnuumhverfi þeirra og sérmiðaðar breytingar í samræmi við aldurstengdar breytingar á sjón og líkamlegri getu. Lögð er áhersla á heilbrigða öldrun með þjálfun um hvernig heilsufarsvandamál eru fyrirbyggð og með afsláttum á heilsusamlegu fæði. Samskipti á milli aðila er lykilþáttur í árangri verkefnisins, þar sem starfsmenn eru hvattir til að taka jafnan þátt í mótun vinnustaðar sem hefur öryggi og velferð að leiðarljósi. Fyrirtækið hefur náð markmiði sínu um „engin slys“ og hefur fengið hrós, bæði innanlands og alþjóðlega, fyrir stefnu sína um heilsu og öryggi. Auðvelt er að yfirfæra frumkvæðið á önnur svið og hefur fyrirtækið þegar hafið að innleiða áætlunina í allri aðfangakeðju sinni.

Sækja in: en