Austurríki — aðlögun að öldrun vinnuafls
09/03/2016
SONNENTOR, dreifingaraðili lífrænna matvæla sem leggur áherslu á sjálfbærni, fékk fjármögnun til að innleiða aðgerðir fyrir eldra starfsfólk sem austurríska atvinnumálastofnunin setti af stað árið 2000. Á meðal aðgerða var stytting vinnutíma án skerðingar á lífeyris og takmörkun á vinnutíma starfsmanna á eftirlaunum. Þetta leiddi til aukinnar varðveislu þekkingar hjá fyrirtækinu, meðfram því sem sérþekking eldri starfsmanna var viðurkennd. SONNENTOR innleiddi einnig eigin aðgerðir fyrir eldra starfsfólk. Vinnuvistfræðilegar úrbætur voru gerðar, hvatt var til starfstengds hreyfanleika innan fyrirtækisins og leiðsögn var veitt um heilbrigðan lífsstíl, að frumkvæði starfsmanna. Leiðbeinendur innan fyrirtækisins, með aðstoð Trilog og Qualification Alliance, stuðluðu að bættum samskiptum milli starfsmanna á ólíkum aldri. Niðurstöður sýndu minnkaða fjarveru vegna veikinda og frumkvæðið hjálpaði SONNENTOR að fá landsbundna Nestor Gold-vottun (staðal um kynslóðamiðaða vinnuaflsstjórnun). Lykillinn að árangrinum voru mikil og góð samskipti, þátttaka starfsmanna og sveigjanleiki aðgerðanna. Frumkvæðið getur gagnast mörgum fyrirtækjum, en árangurinn var að hluta til vegna sérstakrar aðlögunar að þörfum SONNENTOR.