Ársskýrsla 2014: Bættar vinnuaðstæður í Evrópu
25/05/2015
Tegund:
Ársskýrslur og önnur fyrirtækjarit
73 blaðsíður
Í ársskýrslunni 2014 sýnir Vinnuverndarstofnun Evrópu (EU-OSHA) fram á hvernig hún hjálpar til við að bæta vinnuaðstæður í Evrópu, einkum í ör- og smáfyrirtækjum. Meðal helstu starfa ársins 2014 má nefna að lokið var við vettvangsvinnu í tengslum við könnunina ESENER-2, verkefninu Bætt vinnuvernd í ör- og smáfyrirtækjum í Evrópu var hleypt af stokkunum, Gagnvirka áhættumatstólið á Netinu (OiRA), árangur herferðarinnar Vinnuvernd vinnur á streitu og opnun á OSHwiki sem búið var að bíða eftir í ofvæni. Hún lítur einnig til framtíðar og næstu herferðar, Heilbrigðir vinnustaðir fyrir alla aldurshópa, sem beinir sjónum sínum að því að efla sjálfbæra starfsævi.