ESENER 2

Fyrirtækjakönnun Evrópu um nýjar og aðsteðjandi áhættur (ESENER) á vegum EU-OSHA er ítarleg könnun sem skoðar hvernig öryggis- og heilbrigðisáhættum er stjórnað á evrópskum vinnustöðum. Þó að upplýsingar um vinnutengd slys og vanheilsu hafi verið í boði í gegnum starfsmannakannanir og tilkynningarkerfi að þá er lítið vitað um hvernig áhættum gegn heilbrigði og öryggi er stjórnað í reynd. Með því að skýra frá þörfum atvinnurekenda á stuðningi og sérfræðiþekkingu og bera kennsl á hvað geti hvatt til eða hindrað áhættuforvarnir að þá hjálpar ESENER við að fylla í þekkingargatið. Fyrsta könnunin var gerð árið 2009.

Könnun númer tvö safnaði svörum frá nærri því 50.000 fyrirtækjum um vinnuverndarstjórnun og áhættur á vinnustöðum en sérstök áhersla var lögð á þátttöku starfsmanna og sálfélagslegar áhættur. Upplýsingar úr könnuninni má finna í gegnum stjórnborð á Netinu.

Vettvangsvinna fyrir nýju könnunina fór fram árið 2014 og náði bæði til fyrirtækja í opinbera og einkageiranum í ESB-28 svo og í Albaníu, á Íslandi, í Svartfjallalandi, fyrrum júgóslavneska lýðveldinu Makedóníu, Serbíu, Tyrklandi, Noregi og Sviss. Í fyrsta skipti var landbúnaður og fiskveiðar auk örfyrirtækja með 5-10 starfsmönnum með í könnuninni. Svarendur svöruðu spurningum um helstu áhættuþætti í fyrirtækjum sínum og sögðu frá því hvernig og hvers vegna þeir stjórna þeim ásamt því að tilgreina hindranir þegar kemur að forvörnum. Ítarlegt yfirlit yfir skýrsluna verður í boði á ensku 2016.