Bretland — „Velferðarkerfi“ Northumbrian Water Group
09/03/2016
Northumbrian Water Group Limited (NWL) dreifir og sér um fráveituvatnskerfi. Af heildarvinnuaflinu er 30% yfir fimmtugt. - Veikindaleyfi vegna kvilla í vöðva- og beinakerfi og streitu kosta eina milljón sterlingspunda á hverju ári. „Velferðarkerfi“ NWL er ætlað að koma í veg fyrir langvarandi heilsukvilla. Frá 2006 hafa stjórnendur verið þjálfaðir í að greina vandamál starfsfólk, eiga viðeigandi samtal og benda á tiltæka þjónustu fyrir starfsfólk sem heyrir undir velferðarkerfið. . Síðan 2008 hefur RehabWorks boðið upp á fyrirbyggjandi sjúkraþjálfun fyrir starfsfólk. Tillögur eru sendar á vinnuveitanda og skýrsla er send á heimilislækni starfsmanns. Streituminnkun hefur verið helsta áhersla fyrirtækisins síðan 2010 og hafa stjórnendur hlotið þjálfun í að stjórna viðkvæmum aðstæðum. Auk þess er starfsfólki og fjölskyldum boðið upp á trúnaðarráðgjöf þegar þörf krefur. Veikindaleyfum sem tengjast kvillum í beina- og vöðvakerfi hefur fækkað um 40% og streitutengd veikindaleyfi hefur fækkað um 13%. Stjórnin hefur lýst yfir að þátttaka starfsfólks hefur batnað. Af árangursþáttum má nefna þátttöku mismunandi hagsmunaðila innan fyrirtækisins, þar á meðal mannauðsdeild, fulltrúar stéttarfélagsins, stjórnendur, starfsfólk og utanaðkomandi stuðning og fjölbreytni í aðgerðum. Ferlin má nota annars staðar, sérstaklega þar sem aðstoðarkerfi fyrir starfsfólk er til staðar.