Svíþjóð — fjárhagsleg samræming endurhæfingar

Lykilorð:

Dreifstýring fjárhagsáætlanna hefur hamlað skilvirkri samræmingu starfsendurhæfingar í Svíþjóð. Í lok árs 2013 var 83 sjálfstæðum samræmingarfélögum falið að samræma fjárhagsáætlun fyrir starfsendurhæfingu allra aðila, þ.m.t. almannatryggingar, vinnumálastofnun, sveitarfélög og sýslunefndir. Fjárhagsleg samræming endurhæfingar er til staðar í 225 sveitarfélögum af 290. Hlutverk samræmingafélaganna er meðal annars að setja markmið fyrir fjárhagslega samræmingu, gera fjárhagsáætlanir, samræma samstarfsaðila, úthluta styrkjum, sinna eftirliti og meta endurhæfingaraðgerðir. Íhlutanir eru aðallega ætlaðar fólki undir þrítugu, þá sem hafa verið í langtíma veikindaleyfi og þá sem glíma við andleg veikindi. Íhlutanir til að koma fólki aftur í vinnu skiluðu árangri í 53% tilfella árið 2013. Viðamiklar utanaðkomandi rannsóknir sýna að fyrir hvern einstakling sem snýr aftur til vinnu, fær samfélagið til baka það sem fór í endurhæfingu hans eða hennar. Auk þess sýnir eftirlitskerfið SUS fyrir þetta svið að 31% þátttakenda snéri aftur til vinnu eða þjálfunar í kjölfar íhlutunar, en aðeins 11% náðu því fyrir íhlutun. Árangursþættir voru meðal annars samþætt nálgun sérfræðinga. Þetta kerfi er yfirfæranlegt ef breytingar eru gerðar á ólíkum skyldum stofnanna. 

Sækja in: en