Samantekt: Vönduð skýrsla um frjósemiskaðandi eiturefni
14/02/2017
Frjósemi fólks kann að stafa hætta af hættulegum efnum, s.s. meindýraeitri og lyfjum sem og af ýmsum líffræðilegum, efnislegum, efnafræðilegum og sálfræðilegum þáttum.
Málum frjósemisskaðandi hættu á vinnustað hefur að miklu leyti verið beint að konum og þá einkum þunguðum konum. En þetta mál getur varðar bæði konur og karla. Eiturefni sem geta skaðað frjósemi geta líka skaðað þroska fósturs og einstaklinga og haft í för með sér fósturlát, vansköpun og fötlun.
Samantektin kynnir í stuttu máli niðurstöður skýrslu sem kannaði núverandi þekkingu á vinnutengdri hættu sem tengist frjósemi. Þar er ljósinu varpað á þau svið þar sem þekking er af skornum skammti og komið með tillögur um leiðir til að auka vitund og bæta forvarnir.