Tegund:
Reports
203 blaðsíður
Viðvörunar- og viðbragðsaðferðir fyrir greiningu á vinnutengdum sjúkdómum í ESB
Keywords:Í þessari skýrslu eru kynntar niðurstöður úr stóru verkefni um viðvörunar- og viðbragðsaðferðir til að greina aðsteðjandi hættur þegar kemur að vinnuvernd og nýjum vinnutengdum sjúkdómum.
Núverandi aðferðir sem hafa verið innleiddar í Evrópusambandinu (og í sumum tilfellum á fleiri stöðum) voru kannaðar og eftir greiningu á 12 viðvörunar- og viðbragðskerfum og ráðgjöf sérfræðinga og hagsmunaaðila voru settar fram ráðleggingar um uppsetningu á slíkum eftirlitskerfum og hvernig megi bæta þau.
Þessi rannsókn mun veita betri skilning á árangursríkum viðvörunar- og viðbragðsaðferðum og hvernig þessar aðferðir geta hjálpað við stefnumótun og gagnreyndar varnir gegn nýjum vinnutengdum sjúkdómum.