Spánn — aðgerðir til að halda í reynslumikið starfsfólk hjá ISS Facility Services
09/03/2016
ISS Facility Services býður upp á aðbúnaðar- og eignastýringarþjónustu. Af 29.835 starfsmönnum eiga 1834 rétt á lífeyrisbótum. Vinnan er líkamlega og andlega erfið og því voru innleiddar aðgerðir sem taka mið af heilsu eldra starfsfólks og byggja þær á kjarasamningum við stéttarfélög. Ætlunin var að minnka kostnað vegna veikindaleyfa og viðhalda reynslumiklu starfsfólki í stjórnum og starfsfólki í byggingarviðhaldi. Utanaðkomandi ráðgjafar framkvæmdu aldursmiðaða greiningu sem leiddi til upptöku læknisprófa fyrir fólk eldra en 55 ára, aðlögunar/tilfærslu á vinnustað og forgangsréttar á sveigjanlegri vinnu/uppsagnarfresti fyrir eldra starfsfólk. Stjórnendur og allir starfsmenn yfir 55 ára aldur tóku þátt í starfstengdu heilsuátaki þar sem gerð voru drög að áframhaldandi leiðtogaþjálfun. Frammistaða starfsfólks og hollusta hefur aukist og veikindaleyfum hefur á sama tíma fækkað. Árangursþættir voru meðal annars þátttaka hagsmunaaðila og efstu stjórnarmeðlima, fjölbreytileiki aðferða og utanaðkomandi stuðningur. Vandamál komu upp í tengslum við innleiðingu breytinga innan fyrirtækja viðskiptavina og takmarkaðri þátttöku starfsfólks við þróun verkefnisins. Svipaðar aðferðir má yfirfæra á önnur fyrirtæki, sérstaklega í tengslum við heilsueftirlit á líkamlega erfiðum vinnustöðum og réttindi eldra starfsfólk.