Slóvenía — heilsueflingarteymi sett saman í Domel
09/03/2016
Domel Holding d.d., sem er í eigu starfsfólks, er stór alþjóðlegur framleiðandi rafmótora sem er með 952 starfsmenn og meðaldurinn er 40 ár. Síðan 1998 hefur heilsueflingarteymið lagt áherslu á að fyrirbyggja heilsukvilla og draga úr veikindaleyfum og stuðla að aukinni heilsu til að efla velferð starfsfólks. Starfsendurhæfingarviðtöl fara fram til að komast að ástæðu veikindaleyfa, sérstaklega fyrir starfsfólk með heilsukvilla. Ástæður/kostnaður er greindur og fyrirbyggjandi aðgerðir skilgreindar, þ.m.t. læknisskoðanir til að koma í veg fyrir sjúkdóma og vinnuaðlögun til að fækka slysum/meiðslum. Verkefnið „Betri lífstíll og heilsa“ er ætlað að vekja athygli á heilbrigðari lífstíl. Verkefnin fela í sér þjálfun og niðurgreiðslu. Starfsemi heilsueflingar hefur hlotið styrk frá sjúkratryggingastofnun síðan 2013 og felur í sér innleiðingu og mat á þessari starfsemi. Skilningur á veikindaleyfum hefur aukist og kvillar og meiðsl tengd beina- og vöðvakerfi hafa dregist saman. Af árangursþáttum má nefna notkun óformlegra samskipta, kerfisbundna greiningu á veikindaleyfum og stöðugt eftirlit og mat. Hæg tíðni niðurstaða og skortur á víðtækri heilbrigðisþjónustu fyrir starfsfólk hafði bæði í för með sér vandamál. Hægt er að nota verkefnið hjá öðrum fyrirtækjum ef breytingar á vinnuumhverfinu eru mögulegar.