Slóvenía — áætlunin „Umönnun fyrir heilbrigða starfsmenn’ í Velenje-kolanámunni

Keywords:

Kolanáman Premogovnik Velenje leggur áherslu á vinnuvernd starfsmanna og kom á áætluninni „Umönnun fyrir heilbrigða starfsmenn“ árið 1998. Markmiðið með áætluninni er að draga úr fjarveru vegna veikinda og raskana í stoðkerfinu og nær hún til allra starfsmanna með áherslu á eldri starfsmenn. Kjör fyrir eldri starfsmenn gilda fyrir karlmenn eldri en 46 ára og konur eldri en 45 ára. Innanhússmat leiddi til aðlögunar á vinnu og viðtöl þegar starfsmenn mættu aftur til vinnu leiddu til endurbóta á vinnuaðstæðum. Aðrar aðgerðir eru ákvarðaðar með greiningu á starfsgetu og aldursskiptingu frá heilbrigðisstofnun. Á meðal aðgerða eru sérsniðnar læknisskoðanir, virkt leyfi fyrir starsfmenn í áhættuhópi, fyrirbyggjandi stutt hlé og íþróttir. Árlegt mat sýnir minnkaðar fjarvistir vegna veikinda og fækkun vinnuslysa og raskanir í stoðkerfinu eru greindar tímanlega. Fyrirhugaðar endurbætur eru meðal annars aukin forvarnarþjálfun fyrir alla starfsmenn. Fyrirtækið heldur áfram að vinna að málaflokknum með þátttöku sinni í tveggja ára evrópsku vinnuverndarverkefni. Á meðal árangursþátta eru öflug vinnuverndarstefna, mat á þörfum starfsmanna, notkun utanaðkomandi stuðningsþátta, fjölbreyttar aðgerðir og reglulegt mat. Áætlunin getur nýst í öðrum geirum ef viðeigandi breytingar eru gerðar.

Sækja in: en