Forvarnir gegn stoðkerfissjúkdómum og sálfélagslegri áhættu á vinnustöðum: Stefna ESB og áskoranir framtíðarinnar
07/02/2022
Miklar rannsóknir benda á áhrif vinnutengdar stoðkerfissjúkdóma á vinnu. Talið er að einstaklingsbundnir, líkamlegir, sálfræðilegir, félagslegir og vinnutengdir þættir ásamt öðrum þáttum sem bæði tengjast vinnu og ekki leiki hlutverk þegar kemur að vinnutengdum stoðkerfissjúkdómum. Með tímanum hafa rannsóknir leitt í ljós að sálfélagsleg áhætta leikur stærra hlutverk þegar kemur að ástæðunum fyrir stoðkerfissjúkdómum.
Sterkar vísbendingar eru um að sálfélagslegir og skipulagslegir þættir auki áhættu á stoðkerfissjúkdómum, einkum ef líkamleg áhætta kemur þar einnig við sögu. Þessi umræðudrög veita yfirlit yfir útbreiðslu stoðkerfissjúkdóma í Evrópu og skoðar Ítalíu sérstaklega þar sem stoðkerfissjúkdómar á vinnustöðum hafa farið vaxandi.
Drögin fjalla enn fremur um tilskipanir ESB, leiðir og stefnur ásamt evrópsk verkefni til að koma í veg fyrir vinnutengd stoðkerfisvandamál eins og herferð EU-OSHA 2020-2022 „Hæfilegt álag - Heilbrigt stoðkerfi“. Drögunum lýkur á því að undirstrika þörfina á samþættri, heildstæðri og fjölþátta nálgun að stjórnun og forvörnum stoðkerfissjúkdóma.