Forvarnir gegn stoðkerfissjúkdómum í byggingariðnaði: dæmi frá hvataverkefnum INAIL
10/12/2020
Þessi umræðudrög fjalla um tíðni stoðkerfissjúkdóma í byggingariðnaði í Evrópusambandinu og sérstaklega á Ítalíu og þau verk sem skapa áhættu hjá starfsmönnum eins og að lyfta hlutum handvirkt og skringileg líkamsstaða.
Drögin beina sjónum sínum sérstaklega að titringi sem verulegum áhættuþætti en hann kemur við sögu hjá starfsmönnum sem nota verkfæri og vélbúnað sem veldur titringi í höndum-handleggjum og öllum líkamanum.
Upplýsingar eru veittar um staðlaðar aðferðir til að leggja mat á áhættu í tengslum við lífaflfræðilegt yfirálag auk þess sem drögin kynna dæmi um verkefni, sem styrkt eru af INAIL; ítölsku vinnuslysatryggingarstofnuninni, sem hjálpa byggingarfyrirtækjum við að draga úr áhættu á stoðkerfissjúkdómum.