Noregur — stefnumörkun í tengslum við eldra starfsfólk á St. Olavs sjúkrahúsinu

Keywords:

St. Olavs sjúkrahúsið er með 9.726 manns í vinnu og þar af eru 2000 eldri en 55 ára. Kostnaður við ótímabær starfslok er mikill og sjúkrahúsið vill halda í reynslumikið starfsfólk. St. Olavs innleiddi stefnu í tengslum við eldra starfsfólk, án þess að lögin gerðu kröfu um slíkt, í samstarfi við stéttarfélögin og utanaðkomandi ráðgjafa. Frá og með 55 ára aldri er starfsfólki boðið upp á ýmis úrræði, t.d. viðbótarleyfi („eldri borgara-dagar“), þjálfun, lífeyrisráðgjöf, leiðsögn fyrir samstarfsaðila og samtal um starfsgetu við matsskýrslur. Eldra starfsfólk hefur ennþá aðgang að þjálfun, námsleyfi og starfsráðgjöf. Í mati Work Research Institute kom í ljós að að meðalaldur starfsloka jókst um sex mánuði og að starfsánægja væri mikil. Eldra starfsfólk benti á að mikilvægustu þættirnir væru viðbótarleyfin og þróunarverkefnin. Úrbóta er þörf í stjórnunarþjálfun, reynslumiðlun og þróunarverkefni. St. Olavs hlaut viðurkenningu fyrir stefnumörkun sína í tengslum við eldra starfsfólk (2011). Á meðal árangursþátta má nefna staðfestu stjórnar, þátttöku hagsmunaðila, sveigjanlega ákvörðunartöku og langtímasýn. Stefnumörkunina má nota annars staðar, t.d. hjá minni fyrirtæki með breytingum.

Sækja in: en