Holland — vottun fyrir „Sérfræðing með reynslu“: þjálfun á sviði starfsendurhæfingar fyrir fólk með langvinna sjúkdóma af fólki með langvinna sjúkdóma.

Keywords:

Miðstöð fyrir langvinna sjúkdóma og atvinnu (The Centre for Chronic Illness and Work (CCZW)) er í samstarfi við sjö sjúklingasamtök á landsvísu (hvert og eitt einblínir á langvinnan kvilla, t.d. vefjagigt, mýlisskaða, gigtsótt) til að þjálfa upp fólk með langvinna sjúkdóma með tilbúnum námskeiðum og prófunum til að verða „sérfræðingar með reynslu“ eftir sex til níu mánaða námskeið. Þegar þeir hafa fengið vottun geta þessir þjálfarar hjálpað sjúklingum að lifa með sjúkdómnum og/eða snúa aftur til vinnu. Síðan 2014 hafa 10 þjálfarar lokið þjálfun og aðrir 14 eru enn í þjálfun. Þjónustan er styrkt af CCZW og sjúklingasamtökum og þjálfararnir fá greitt fyrir þeirra tíma frá atvinnuveitendum, atvinnutryggingum eða einstaklingum. Eldri verkefni af svipuðum toga leiddu í ljós að 28% af þjónustunotendum snéru aftur til starfa með góðum árangri og önnur 10% fundu sjálboðavinnu. Á meðal árangursþátta var nálgun með jafningastuðningi og samstarf við sjúklingasamtök. Helstu vandamálin voru óvissa í tengslum við styrki og stjórn á eftirspurn eftir þjónustunni. Þetta módel er hægt að nota annars staðar, sérstaklega þar sem svipaðar endurhæfingarstofnanir og stuðningsþjónusta er þegar til staðar. 

Sækja in: en