Stoðkerfissjúkdómar meðal launþega með heila- og mænusigg: verkbundin sýn
17/01/2022
Ekki er góður skilningur á stoðkerfissjúkdómum og orsökum þeirra í heila- og mænusiggi (MS) en þeir hafa áhrif á lífsgæði fólks með MS. Áhrif MS ná til getu sjúklinga til vinnu og er minni starfsgeta helsta samfélagslega afleiðing sjúkdómsins.
Þessi skýrsla eykur þekkingu á stoðkerfissjúkdómum hjá MS og áhrifum þeirra á vinnu sjúklinga með MS. Oft þarf að laga vinnuaðstæður og -umhverfi fólks með MS að heilsufari þeirra þar sem þættir sem tengjast vinnu, aðstoð og einkennum hafa áhrif á getu fólks til að finna og halda í vinnu.
Skýrslan undirstrikar jákvæða þætti fjölfaglegrar nálgunar þegar kemur að íhlutunum og hlutverk iðjuþjálfunar. Hún fjallar um eflingu með þjálfun, einkum vinnuverndarfulltrúa fyrirtækja og leiðir til að greina og kynna til sögunar eðlilegar aðlaganir sem gera fólki með fötlun kleift að finna vinnu og halda henni.