Stoðkerfissjúkdómar og sálfélagslegir áhættuþættir á vinnustöðum — tölfræðigreining á könnunarupplýsingum úr öllu Evrópusambandinu
10/12/2021
Tegund:
Skýrslur
111 blaðsíður
Þessi skýrsla kynnir hugmyndafræðina sem stuðst var við til að skýra vinnutengda áhættuþætti fyrir stoðkerfissjúkdóma og andlega vellíðan. Hún greinir gögn frá síðustu Evrópukönnun um vinnuaðstæður (EWCS) og Fyrirtækjakönnun Evrópu um nýjar og aðsteðjandi hættur (ESENER) til að skoða hvernig starfseinkenni einstakra launþega (eins og líftæknilegir og sálfélagslegir þættir) og vinnuverndarstjórnun innan viðkomandi fyrirtækis tengjast stoðkerfissjúkdómum og vellíðan.
Skýrslan kemst að því að tilteknir sálfélagslegir áhættuþættir hafi mikil áhrif á stoðkerfissjúkdóma og vellíðan og veitir ráðleggingar og undirstrikar þörfina á heildstæðu áhættumati til að draga úr neikvæðum áhrifum á heilsufar á vinnustöðum.