Lettland — mannauðsstefna til stuðnings eldra starfsfólki hjá Latvias Balzams
09/03/2016
Drykkjaframleiðandinn Latvijas Balzams er með 600 manns í vinnu og þar af er 20% yfir 57 ára aldri. Áhættusamt verkferli eykur líkurnar á kvillum tengdum beina- og vöðvakerfi í gegnum starfsævina. Sérhæfni er mikil og sömuleiðis kostnaður við ráðningu/þjálfun. Samkvæmt kjarasamningum innleiddi fyrirtækið átaksverkefni til að minnka starfsmannaveltu og halda í eldra starfsfólk. Með heilbrigðisvottorði voru ýmsar breytingar innleiddar, t.d. sveigjanegri vinnutímar, verkefnaaðlögun og flutningur í starfi. Viðbrögðin við þessu verkefni var mest á meðal eldra starfsfólks. Ráðgjafar settu á laggirnar leiðbeiningarverkefni fyrir eldri og yngri starfsmenn til að viðhalda þekkingu innan fyrirtækisins. Önnur starfsmannafríðindi eru t.d. sjúkratrygging og íþróttastyrkir. Starfsmannafesta hefur aukist og kannanir sýna aukna meðvitund um vinnuvernd og heilbrigði og starfsfólk óskar eftir meiri þátttöku á þessu sviði. Af árangursþáttum má nefna innleiðingu starfsemi vinnuverndar inn í heildarstjórnkerfi fyrirtækisins (ISO 9001), þátttöku stéttarfélaga og notkun utanaðkomandi sérfræðinga. Skortur á einstaklingsbundnum áhuga var vandamál. Reynslan sem hlaust af þessu verkefni nýtist nú í verkefni á landsvísu sem er styrkt af Evrópska félagsmálasjóðnum. Verkefnið má nota í öðrum fyrirtækjum ef viðeigandi fjármögnum er til staðar.