Ungverjaland — „STEP: Taktu skrefið fyrir þína heilsu“ (MOL Plc)

Lykilorð:

MOL er einn stærsti vinnuveitandi í Ungverjalandi og er fyrirtækið er talið leiðandi í sjálfbæru starfsmannahaldi. Síðan 2007 hefur STEP verkefnið unnið að því að fækka slysum á vinnustað og veikindaleyfum og halda eldra starfsfólki í vinnu. Stýrinefnd (sem samanstendur af stjórnarmeðlimum og starfsfólki) sér um að samræma heildaráætlun fyrirtækisins. Heilbrigðisþjónusta starfsmanna felur í sér að meta heilsu hvers starfsmanns og sett er saman einstaklingsbundin heilsuáætlun sem inniheldur t.d. aðlögun á vinnustað, þjálfun eða líkamseflingu. Teymi á vinnustaðnum kynna átaksverkefni á staðnum, t.d. í tengslum við heilbrigðara mataræði og reykingar. Könnun sýnir að þátttakendum verkefnisins fer fjölgandi, veikindaleyfi eru undir 2%, hjarta- og æðasjúkdómum hefur fækkað um 5% og heilsumenning vinnustaðarins hefur batnað. Af árangursþáttum má nefna innleiðingu heilsueflingar í stefnumótun fyrirtækisins, þátttöku hagsmunaaðila, fjölbreytileika aðferða og skýr samskipti. Vandamál komu upp í tengslum við breytingar í vinnumenningu og skort á fjármögnun verkefnisins. Verkefnið má nota annars staðar og þrátt fyrir að það sé yfirgripsmikið eru aðferðirnar sérsniðnar að hverjum starfsmanni.

Sækja in: en