Þýskaland — „Integrationsprojekt Rehafuturreal®“: endurhæfing Westphalian lífeyriskerfisins

Lykilorð:

Westphalia setti á laggirnar verkefnið „Integrationsprojekt RehaFuturReal®“ í tengslum við framtakið RehaFutur, en það er forvirkt, starfstengt endurhæfingarkerfi sem á að veita fólki í veikindaleyfi starsfendurhæfingu svo það geti snúið aftur á vinnumarkaðinn. Í kjölfar þrískipts mats, sem felur í sér aðkomu þjálfaðra endurhæfingarráðgjafa, sjálfsmat og læknismat, er endurhæfingaráætlun samþykkt. Áhugi starfsmanns gegnir lykilhlutverki í starfsendurhæfingarferlinu. Áætlunin getur falið í sér starfsþjálfun, tæknilega aðstoð eða endurskipulagningu á starfi. Það er endurhæfingarráðgjafinn sem sér um skipulagningu með starfsmanni og hann er í sambandi við BFW endurhæfingarsamtökin og aðra aðila, t.d. aðlögunardeildina. Staðlað mat leiddi í ljós að 74% þátttakenda snéru aftur á vinnumarkaðinn og 56% til fyrri vinnuveitanda. Árangurþættir voru einstaklingsmiðaðar aðferðir og aðgengi að sérfræðiþekkingu þjálfaðra ráðgjafa. Vandamál komu upp þegar aðrir þættir (t.d. aldur) höfðu áhrif á heilsukvilla viðkomandi eða þegar einstaklingar lentu í ágreiningi í vinnu. Áætlunina má yfirfæra á önnur samtök af öllum stærðum og gerðum, í hvaða aðildarríki sem er þar sem tryggingarfélög eiga hagsmuni að gæta í tengslum við starfsendurhæfingu og eru fús til að vinna í samstarfi við aðra hagsmunaðila.

Sækja in: en